kelublogg - life itself is the most wonderful fairy tale

23.2.07

Ég er flutt hingað, allavega í bili:)

Kela at 23.2.07





Ég var búin að skrifa langt blogg í morgun, en þegar ég ætlaði svo að vista það þá datt allt út...óþolandi þegar þetta gerist. Nenni ekki að skrifa þetta aftur núna, en setti inn myndir af leðurblökunorninni og eyrnaslapa í staðinn:) Er heima í dag í fríi, vetrarfrí hjá Kötlu í skólanum og svo er Hekla búin að vera lasin, er með einhvern vírus, er búin að vera með hita, kvef og niðurgang síðan á þriðjudagskvöld, er líka með bólgna eitla í náranum. Fór með hana til læknis útaf því á þriðjudaginn og í framhaldi af því í blóðprufu á miðvikudagsmorguninn. Við fengum svo fyrstu niðurstöður úr blóðprufunni seinni partinn á miðvikudaginn, það kom sem betur fer allt vel út, þannig að líklega er þetta einhver vírus sem er að herja á dömuna. Eigum að mæta með hana aftur hjá lækninum í næstu viku. Annars bara allt gott að frétta, sólin skín og Katla búin að vera úti að hjóla í allan morgun, og ég hengdi út þvott áðan...vona að þetta góða veður haldist eitthvað:)

Kela at 23.2.07

16.2.07

Bloggleysið að undanförnu orsakast eingöngu af veseni og leiðindum hjá blogger.....það er ekki leti af minni hálfu að kenna...*hóst*....en blogger hefur reyndar verið alveg hundleiðinlegur við mig síðan ég skipti yfir í nýju útgáfuna..annðhvort sjást ekki íslensku stafirnir eða þá að kommentakerfið dettur út. Ætla að gefa þessu séns aðeins lengur en annars neyðist ég til að færa mig eitthvað annað. Annars er það helst að frétta að Hekla er byrjuð hjá nýju dagmömmunni...fyrsti heili dagurinn hennar í dag. Hún byrjaði í aðlögun á mánudaginn og þetta hefur allt gengið ótrúlega vel. Við kíktum bara í smá heimsókn saman á mánudaginn...svo á þriðjudaginn var ætlunin að ég yrði með henni aðeins til að byrja með en þegar við komum inn þá fór mín bara strax að skoða dótið og tala við krakkana þannig að ég kvaddi hana bara...hún setti upp smá skeifu svona rétt til að sýnast þegar ég fór en svo gekk bara mjög vel og ég skildi hana eftir í rúman klukkutíma. Í gær var hún svo hjá henni til kl 15...ég sótti hana fljótlega eftir að hún vaknaði eftir lúrinn og ég fór með hana til Helgu til að kveðja og hún fékk að vera hjá henni á meðan ég skaust aftur í vinnuna til að klára daginn. Þannig að niðurstaðan er sú að hún er alveg ótrúlega dugleg þessi litla skotta...(enda vissi ég það svosem fyrir) og þær báðar systurnar að sjálfsögðu:) Ég fór í maður lifandi um daginn og keypti mér kókosolíu sem á að vera allra meina bót, borða samviskusamlega 2 teskeiðar á dag og sit svo bara og halla mér aftur og bíð eftir the coconut oil miracle, á ekki von á öðru en að ég verði orðin hrikalega fitt og flott í sumar:)

Kela at 16.2.07

4.2.07



Datt í að horfa á þátt á sirkus áðan, um snillinginn Freddy Mercury . Mjög áhugaverður þáttur. Í framhaldi af þættinum horfði ég svo á upptöku frá tónleikum Queen á Wembley 1986. Algjör snilld, varð svo náttúrulega að fara að nördast á youtube og fann Bohemian Rhapsody þar á þessum sömu tónleikum. Annars var helgin bara þrælfín. Skutlaði Kötlu í afmæli hjá bekkjarsystur sinni í gær og tók einn maraþonrúnt á útsölulokum í Smáralind á meðan hún var í afmælinu, keypti nú mest lítið reyndar. Fórum svo heim og biðum eftir að Sæbi væri búinn að vinna, fengum okkur göngutúr út í búð og keyptum í matinn. Svo var horft á Eurovision...frekar lítið spennandi þar, nema kannski helst dr. Gunna lagið, hehe...verst að hann var ekki sjálfur í glansgallanum, þá fyrst hefði þetta nú verið flott:) En annars er Eiríkur Hauksson að sjálfsögðu langbestur í þetta, ekki spurning. Dagurinn í dag fór svo bara í notalegheit og tiltekt...fór með stelpurnar í sund í morgun....Hekla fór svo út að sofa fljótlega eftir að við komum heim og við Katla tókum til og þrifum, hún var alveg æst í að hjálpa til sem var ekki verra....heilmikil hjálp í henni. Bökuðum svo bananabrauð og slugsuðumst það sem eftir var dags:)

Kela at 4.2.07

2.2.07

What Your Soul Really Looks Like

You are very passionate and quite temperamental. While you can be moody, you always crave comfort.

You are a very grounded, responsible, and realistic person. People may not want to hear the truth from you, but they're going to get it.

You see yourself with pretty objective eyes. How you view yourself is almost exactly how other people view you.

Your near future is in a very different place (both physically and mentally) from where you are right now.

For you, love is all about caring and comfort. You couldn't fall in love with someone you didn't trust.
Inside the Room of Your Soul

Kela at 2.2.07

31.1.07

Það passar 2,9 % launahækkunin farinn margfalt í vasa auðvaldsins. Hvað skyldu neytendasamtökin segja við þessu? Og við sjálf ? eigum við kanski einu sinni að sýna smá samstöðu og hætta að kaupa þetta drasl sem verið er að moka í okkur ? eða eigum við að þegja áfram þunnu hljóði og láta fara illa með okkur? Lesið endilega áfram eftir að þið hafið skoðað verðlisann.






Nafn birgja

Vörur sem viðkomandi selur
Hækkun1)
Hvenær tók/tekur hækkun gildi

Ástæður sem gefnar eru fyrir hækkun


Ásbjörn Ólafsson

Knorr, Prins Póló, Maizena, Sultur frá Den gamle fabrik og fleira.
4%
15. jan.

Gengisbreytingar.


Beiersdorf

Nivea vörur.
0-3,9%
1. jan.

Hækkun á aðföngum, vísitölubreytingar og gengisþróun.


Bergdal

Vörur frá Bonduelle, Heinz bakaðar baunir, Sun Maid, Holger.
3-5%
1. jan.

Erlendar verðhækkanir.


BéBé

Hreinlætisvörur frá Frigg, Mjöll og fleirum.
3-12%
18. des.

Ekki hækkað í 18 mánuði. Hækkanir á aðföngum og innfluttum vörum.


Biobú

Lífræn jógurt
2%
1. feb.

Aukinn launakostnaður og hækkanir á umbúðum.


Danól

Blue Dragon núðlur, Pickwick te, Weetabix, sælgæti frá Nestlé, Hatting og Daloon vörur.
3-5%
Í byrjun janúar

Erlendar kostnaðarhækkanir. Í flestum tilvikum hækkar verð ekki frá Danól.


Freyja

Sælgæti
5%
1. feb.

Verðhækkun á hráefni og umbúðum.


Glóbus

El´Vital snyrtivörur, vörur frá Excellence og Casting
4-5%
11. jan.

Erlendar verðhækkanir.


Góa Linda

Sælgæti.
6-10,7%
15. jan.

Ekki hækkað síðan 15. apríl 2005.


Halldór Jónsson

Wella snyrtivörur
3-5%
29. jan.

Gengisbreytingar, erlendar og innlendar kostnaðarhækkanir.


Iðnmark

Stjörnupopp og ostapopp
7,5%
1. feb.

Hækkun á innlendum og erlendum aðföngum (hráefni og umbúðir).


Íslensk Ameríska

Ýmsar tegundir af kexi frá Frón.
5,29%
1. jan.

Launahækkanir, verðhækkun á hráefni.


Íslensk Ameríska

Ýmsar tegundir af kexi frá Kexverksmiðjunni.
6,14%
1. jan.

Launahækkanir, verðhækkun á hráefni, flutningskostnaður.


Íslensk Ameríska

Vörur frá Ora.
4,17%
1. jan.

Launahækkanir, hækkun á hráefni og umbúðum.


K.K. Karlsson

Sacla, tómatvörur, Celestial te, Wasa, Johnson, Ritter auk fleiri mat- og hreinlætisvara.
0-4,5%
1. feb.

Erlendar hækkanir, aukinn flutningskostnaður og gengisbreytingar. Í flestum tilvikum hækkar verð ekki.


Kaffitár

Kaffi
5%
18.jan.




Katla

Púðursykur, bökunardropar, salt, flórsykur, kartöflumjöl og fleira.
4,9%
1. feb.

Erlendar verðhækkanir auk hækkan innanlands.


Kjarnafæði

Kjöt og unnar kjötvörur
2,5%
2. Jan.

Kostnaðarhækkanir


Kjarnavörur

Sultur, grautar, smjörlíki
5%
15. jan.

Verðhækkanir á hráefni, umbúðum og fluttningum, auk launahækkana.


Kjörís

Ís og íssósur
3-4%
15. feb.

Verðhækkanir á hráefni, launahækkanir og gengisbreytingar.


Kólus, lakkrísgerð

Sælgæti
8,3%
1. feb.




Lýsi

Lýsi, lýsispillur og fleiri heilsubótarvörur.
8%
1. des.

Hefur ekki hækkað síðan 1. okt. 2003. Á síðasta ári hækkaði lifrarverð um 33%.


Myllan

Brauð og kökur.
5,8%
1. des.

Launahækkanir, hækkun á hráefni og flutningskostnaði.


Nathan & Olsen

Sykurvörur frá Dansukker, Axa morgunmatur, Isio olíur, Philsbury hveiti, vörur frá Hagver, Libbys tómatsósa, Betty crocker bökunarvörur, Dove snyrtivörur, Lux sápur og fleira.
3,5%
1. des.2)

Gengisbreytingar.


Nói Síríus

Sælgæti frá Nóa Síríus
5-9%
15. jan.

Launahækkanir, hækkun á hráefni og umbúðum.


Nói Síríus

Kelloggs morgunverðarkorn
3,6%
15. jan.

Gengisbreytingar, erlendar verðhækkanir.


Nói Síríus

Cadbury's sælgæti
4,5%
15. jan.

Gengisbreytingar, erlendar verðhækkanir.


O. Johnson og Kaaber

Mömmu vörur,vörur frá Ainsley, Del Monte, Duc d´O, Franko, Griesson, Kim, Kiwi, Melroses, LF&H, Melitta, Pågen, Librese, Libero, Edet, Supreme salt, T&L sykurvörur, Lyle´s, Vilko. Braga kaffi, Rúbín kaffi, Ríó kaffi auk fleiri vara.
4,3%
11.jan

Gengisbreytingar, annar kostnaðarauki.


Papco

Klósettpappír, eldhúsrúllur.
6,2%
12. jan.

Hækkun á hráefnisverði.


Sláturfélag Suðurlands

Unnar kjötvörur, sinnep.
3-5%
22. jan.




Sláturfélag Suðurlands

McCormick krydd (pipar og piparblöndur), Barilla
3-9,7%
15. - 31. jan.

Erlendar kostnaðarhækkanir (mikil hækkun á heimsmarkaðsverði á pipar).


Sól

Ávaxtasafar
7,2%
1. jan.

Hækkun á heimsmarkaði á hráefnum.


Vífilfell

Gosdrykkir, ávaxtadrykkir, léttöl, kolsýrt vatn, áfengur bjór
4,6%
20. jan.

Hækkun á hráefni og umbúðum, launahækkanir.


Ölgerðin Egill Skallagrímsson

Gosdrykkir, ávaxtadrykkir, snakk og sósur
4,9%
1. jan.

Launahækkanir, verðbólga, verðhækkun á aðföngum.


Athugasemdir:
1) Ýmist gefa birgjar upp hækkun sem meðalhækkun eða hækkun sem er á ákveðnu bili.
2) Hækkanir á bökunarvörum tóku gildi 1. janúar sl.



Og hana nú ? Nú er nóg komið???????????..

Vegna lækkunar virðisaukaskatts núna í mars, eru ansi margir sem sjá sér leik á borði og hafa nýtt sér þetta tímabil til að hækka vörur sínar. Þetta er ekkert nema svindl á okkur neytendum, því þessi lækkun stjórnvalda átti að koma í vasa okkar neytenda en ekki byrgja og verslana. Nú er því komið að okkur neytendum að láta í okkur heyra, ég veit að við erum vön að kvarta hver í sínu horni en er ekki kominn tími til að láta þessa aðila vita að við sættum okkur ekki við hvað sem er. Besta ráðið til að mótmæla þessum aðferðum er einfaldlega að hætta að kaupa þessar vörur.

Nú er herferð í gangi sem mótmælir hækkunum birgja og verslana á matvörum.
Sendum áfram og birtum á vefsíðum nöfnin á þeim fyrirtækjum og birgjum sem
hækkað hafa verð. ER EKKI TÍMABÆRT AÐ SNIÐGANGA ÞESSAR VÖRUR ?
Skoðið endilega heimasíðurnar ( bloggsíðuna og síðu neytendasamtakanna) til að sjá hvaða vörur það eru sem hafa verið að hækka.
Mæli með að taka þátt, ekki endalaust hægt að láta vaða svona yfir sig.
Kv Krissa

Sjá nánar: http://nogkomid.blog.is/
https://www.ns.is/ns/frettir/?cat_id=6413&ew_0_a_id=258629

http://nogkomid.blog.is/blog/nogkomid/entry/107756/
Vinsamlegast áframsendið til allra sem þið þekkið!

Kela at 31.1.07

27.1.07




Katla átti afmæli í gær....ótrúlegt til þess að hugsa að frumburðurinn sé orðin 7 ára:) Það var mikið fjör hér í gær þegar 14 hressar stelpur mættu í náttfatapartý....hávaðinn fór örugglega vel yfir öll velsæmismörk þegar fjörið stóð sem hæst en allir skemmtu sér vel, nágrannarnir kvörtuðu ekki og við Sæbi lifðum þetta af:) Svo mætir fjölskyldan í kaffi í dag....verður sennilega mun rólegra yfir þeirri samkomu...nema kannski mannskapurinn finni hjá sér þörf til að skella sér í eins og einn stoppdans eða flöskustút....:)

Kela at 27.1.07

6.1.07

Enn ein jól og áramót að baki. Merkilegt hvað þessir dagar eru alltaf fljótir að líða eftir allan undirbúninginn og tilhlökkunina. Það læðist alltaf að mér smá dapurleiki þegar jólin eru búin og janúar og febrúar framundan. Ekki skemmtilegustu mánuðir ársins í mínum huga. En þessar tilfinngar endast sem betur fer aldrei lengi enda nóg annað að gera en að velta sér uppúr eftirjólablús. Ætla að taka niður jólaskrautið á morgun, skil þó kannski eins og eina seríu eftir í stofuglugganum. Svo er náttúrulega einn stórviðburður hjá fjölskyldunni framundan núna í janúar, nefnilega sjö ára afmæli stóru stelpunnar okkar. Hún er reyndar löngu farin að plana það...stefnan sett á náttfatapartý þetta árið:) Það er komið upp smávandamál sem við fréttum af á föstudaginn nefnilega það að dagmamman hennar Heklu er á leið í fæðingarorlof um miðjan mars sem þýðir það að við þurfum að fara á fullt núna að leita að annarri dagmömmu, eða ég er reyndar að vona að við getum fengið leikskólapláss fyrir hana. Er reyndar ekkert alltof bjartsýn á það, býst ekki við að hún komist inn fyrr en í sumar eða haust. En það sakar samt ekki að reyna. Leiðinlegt að þurfa að fara að aðlaga hana hjá nýrri dagmömmu fyrir örfáa mánuði. En þetta á nú samt örugglega allt eftir að reddast. Ég fékk svo skemmtilega heimsókn en Inga Sigga og Berglind komu í gærkvöldi, borðuðu kvöldmat hjá okkur og við skvísurnar skelltum okkur svo í bíó. Sáum the holiday, hún kom skemmtilega á óvart. Skemmtilegur söguþráður og góðir leikarar. Ekta svona "feel good" mynd. Við fórum svo bara hingað heim eftir bíóið og kjöftuðum fram á nótt. Inga Sigga fór svo í skólann í dag og við Berglind flatmöguðum í sófanum á meðan og horfðum á friends. Ég var svo að fá síðbúna jólagjöf, bók sem heitir "Little moments of peace: Daily reflections for mothers. Er byrjuð að glugga í hana, læt eitt gullkorn úr henni fylgja hér: Raising children is presented at first as a true-false test, then becomes multiple choice, until finally, far along, you realise that it is an endless essay.
-Anna Quindlen

Kela at 6.1.07

30.12.06

Stóra brokkolímálið hlýtur að teljast frétt ársins:)


Stærsta grænmetisrán sögunnar

Samkvæmt nýjustu fréttum var vörubílsfarmi af brokkólí stolið í úthverfi í Chicago í dag. Búist er við því að verðið á grænmetinu eigi eftir að hækka vegna þjófnaðarins en grænmetið fyllti stóran 48 feta gám. Rannsóknarmenn velta því nú fyrir sér hvort um sé að ræða stærsta grænmetisrán sögunnar.

Aðspurðir sögðust rannsóknarmenn ekki hafa hugmynd um af hverju einhver myndi stela svo miklu af brokkólí en verðið á því út úr búð hefði verið um 3,5 milljónir íslenskra króna. Sögðust þeir ekki hafa mikla trú á því að verðið væri hátt á brokkólí á svarta markaðnum.

Engar vísbendingar hafa enn komið fram í stóra brokkólímálinu, eins og það er kallað, en lögregla segir að á meðan það séu morðmál í gangi verði brokkólíinu, eins og á svo mörgum diskum yngri kynslóðarinnar, ýtt til hliðar.

Kela at 30.12.06

24.12.06





Við óskum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Rakel, Sæbi, Katla Dögg & Hekla Sif

Kela at 24.12.06

22.12.06

Frá og með deginum í dag þá ætla ég að ganga með flösku af "barbikjúsósu" í veskinu!

Kela at 22.12.06

17.12.06



Ég þarf svosem ekki að kvarta yfir skorti á fallegu útsýni héðan úr Krummahólunum, en í kringum jól og áramót væri ég samt alveg til í að skipta á því og þessu sem sést hér að ofan:) Annars má lesa nánar um þennan sið hér
Það er í nógu að snúast hjá okkur fyrir jólin, fórum í það í gær að koma pökkum og kortum í póst...alltaf gott þegar það er búið. Svo var mikilvægur leikur hjá Sæba í gær, en hann stýrði liðinu gegn FSU þar sem aðalþjálfari meistaraflokks var í leikbanni. Valur vann 115-105 og mikil gleði með það hér á bæ. Jólamót Ægis var haldið í gær og þar voru bleikjuhóparnir með sundsýningu. Katla stóð sig mjög vel, og var mun öruggari en síðast. Það eru líka ekkert lítil umskipti að koma úr litlu grunnu lauginni sem þau æfa í og í 2 metra djúpa laug. Eftir sýninguna mætti svo jólasveinn á svæðið og gaf öllum krökkunum nammipoka. Við skutumst svo í Smáralind með stelpurnar eftir kvöldmat í gær og keyptum nokkrar jólagjafir sem voru eftir. Þannig að þetta er allt að verða komið hjá okkur, bara lokaspretturinn eftir. Það eru bara 2 dagar eftir í kennslu hjá Kötlu, á miðvikudaginn er engin kennsla fyrir hádegi og jólaball eftir hádegi. Katla ætlar því að koma með mér í vinnuna þann dag, hún fer svo í Álfheima á fimmtudaginn, en á föstudaginn er Sæbi í fríi.
Ég næ því bara ekki alveg hvað það er stutt til jóla, mér finnst eins og ég hafi misst af eins og einni viku einhverstaðar í desember:) En ég ætla nú samt bara að slá þessu upp í kæruleysi og skella mér út að borða og í bíó í kvöld, það freistar mín einhvern vegin meira heldur en að vera heima og klára jólahreingerninguna og ráðast á þvottinn:)

Kela at 17.12.06

15.12.06

Karókí fyrir heyrnarlausa:)



(Það þarf samt að hafa kveikt á hátölurunum:)

Kela at 15.12.06

8.12.06

Góður þessi:)

Tickle Me Elmo

There is a factory in Northern Minnesota which makes the Tickle Me Elmo toys.
The toy laughs when you tickle it under the arms.
Well, Lena is hired at The Tickle Me Elmo factory and she reports for her first day promptly at 8:00 AM
The next day at 8:45 AM there is a knock at the Personnel Manager's door.
The Foreman throws open the door and begins to rant about the new employee.
He complains that she is incredibly slow and the whole line is backing up, putting the entire production line behind schedule.
The Personnel Manager decides he should see this for himself, so the 2 men march down to the factory floor.
When they get there the line is so backed up that there are Tickle Me Elmo's all over the factory floor and they're really beginning to pile up.
At the end of the line stands Lena surrounded by mountains of Tickle Me Elmo's.
She has a roll of plush red fabric and a huge bag of small marbles.
The 2 men watch in amazement as she cuts a little piece of fabric, wraps it around two marbles and begins to carefully sew the little package between Elmo's legs.
The Personnel Manager bursts into laughter.
After several minutes of hysterics he pulls himself together and approaches Lena "I'm sorry," he says to her, barely able to keep a straight face,
"but I think you misunderstood the instructions I gave you yesterday..."
"Your job is to give Elmo two test tickles.
Not 2 Testicles

Kela at 8.12.06

3.12.06


Ég fór í aðventukransleiðangur í Garðheima í gærkvöldi. Þegar ég fór að skoða þá mundi ég skyndilega hvað ég var ánægð með aðventukransáfimmmínútum skreytinguna mína í fyrra, þannig að ég ákvað að endurtaka leikinn í ár. Keypti ný kerti og skraut, fór svo í geymsluna og fann plattann frá því í fyrra og skellti þessu saman.
Ekki slæmt þó ég segi sjálf frá:)

Kela at 3.12.06

"Life itself is the most wonderful fairy tale"
H.C. Andersen

*uppáhalds kvikmyndir

*bækurnar á náttborðinu:
-Inés of my soul eftir Isabel Allende
-Little moments of piece: Daily reflections for mothers eftir Andrea Alban Gosline


*tónlist

*blogg sem ég les
Nanna
Snyrtipinninn
Jana
Inga Sigga
Inga Rut
Birgitta frænka
Lísa cookiemonster
Stína
Anna Bogga
Sóley
Dísublogg
Valur-karfa
Kim
Pabbi
Árgangur'78 á Sigló
Erik
Adam Duritz

*tenglar
Stóra prinsessan
Litla prinsessan
Myndaalbúmið
Barnaland
Lífið á Sigló
Síldarminjasafnið
Kvikmyndir.is
Uppskriftir
Fleiri uppskriftir
Counting Crows
Survivor fever
Valur
Vídeóval
Galdrasýning á Ströndum
Kveiktu á kerti
Maður lifandi
Matargatið
J.K. Rowling
Café Sigrún
Póstkortaskipti
43 things
43 places
Póstkortabloggið
Flickr

*ýmislegt
gestabók
póstur
blogskins
blogger

*eldri skrif
20 október 2002 08 júní 2003 10 ágúst 2003 17 ágúst 2003 24 ágúst 2003 31 ágúst 2003 07 september 2003 14 september 2003 21 september 2003 05 október 2003 12 október 2003 19 október 2003 02 nóvember 2003 09 nóvember 2003 23 nóvember 2003 30 nóvember 2003 07 desember 2003 14 desember 2003 21 desember 2003 28 desember 2003 04 janúar 2004 11 janúar 2004 18 janúar 2004 25 janúar 2004 01 febrúar 2004 08 febrúar 2004 15 febrúar 2004 22 febrúar 2004 29 febrúar 2004 14 mars 2004 21 mars 2004 28 mars 2004 04 apríl 2004 11 apríl 2004 18 apríl 2004 25 apríl 2004 02 maí 2004 09 maí 2004 16 maí 2004 30 maí 2004 06 júní 2004 27 júní 2004 11 júlí 2004 18 júlí 2004 01 ágúst 2004 15 ágúst 2004 22 ágúst 2004 05 september 2004 12 september 2004 19 september 2004 26 september 2004 03 október 2004 10 október 2004 17 október 2004 24 október 2004 31 október 2004 07 nóvember 2004 14 nóvember 2004 21 nóvember 2004 05 desember 2004 12 desember 2004 02 janúar 2005 09 janúar 2005 23 janúar 2005 30 janúar 2005 06 febrúar 2005 27 febrúar 2005 06 mars 2005 03 apríl 2005 24 apríl 2005 15 maí 2005 22 maí 2005 05 júní 2005 26 júní 2005 24 júlí 2005 07 ágúst 2005 04 september 2005 11 september 2005 18 september 2005 02 október 2005 09 október 2005 16 október 2005 23 október 2005 30 október 2005 06 nóvember 2005 13 nóvember 2005 20 nóvember 2005 27 nóvember 2005 04 desember 2005 11 desember 2005 18 desember 2005 25 desember 2005 01 janúar 2006 15 janúar 2006 22 janúar 2006 29 janúar 2006 05 febrúar 2006 12 febrúar 2006 19 febrúar 2006 26 febrúar 2006 12 mars 2006 19 mars 2006 26 mars 2006 02 apríl 2006 09 apríl 2006 16 apríl 2006 23 apríl 2006 14 maí 2006 21 maí 2006 28 maí 2006 04 júní 2006 11 júní 2006 18 júní 2006 09 júlí 2006 16 júlí 2006 23 júlí 2006 06 ágúst 2006 13 ágúst 2006 20 ágúst 2006 27 ágúst 2006 03 september 2006 10 september 2006 17 september 2006 24 september 2006 01 október 2006 08 október 2006 22 október 2006 29 október 2006 05 nóvember 2006 12 nóvember 2006 26 nóvember 2006 03 desember 2006 10 desember 2006 17 desember 2006 24 desember 2006 31 desember 2006 21 janúar 2007 28 janúar 2007 04 febrúar 2007 11 febrúar 2007 18 febrúar 2007

FREE fantasy art e-cards at
wickedmoon.com!
Sendu vefkort!



*svona er veðrið hjá mér The WeatherPixie
Click for Reykjavik, Iceland Forecast Click for Reykjavik, Iceland Forecast
Site Meter