kelublogg - life itself is the most wonderful fairy tale

25.8.06


Þetta kalla ég alvöru "action kalla"! Hehehehe:) Fyrir litla nördinn í lífi þínu:)

Kela at 25.8.06

22.8.06

Jæja, þá er ég orðin frú:) Dagurinn okkar var yndislegur frá a-ö, veðrið var frábært og allt gekk upp, eða það voru reyndar svona smáatriði sem voru kannski ekki alveg eins og höfðu verið æfð í athöfninni hehe...ekki rétt hönd hér og þar og ég og pabbi gleymdum að heilsa prestinum og svaramönnunum uppi við altarið en þetta er ekkert sem skiptir máli og er bara skemmtilegt eftir á:) Athöfnin var yndisleg, akkúrat eins og við vildum hafa hana...sr. Vigfús var á léttu nótunum og gerði þetta svo skemmtilegt og persónulegt. Söngurinn hjá Steina bróður og Thelmu var yndislegur (fæ bara tár í augun við að hugsa um þetta). Orri og Katla stóðu sig mjög vel í sínum hlutverkum sem blómastelpa og hringaberi. Kötlu var nú aðeins farið að leiðast þegar líða tók á athöfnina og var farin að kasta blómakörfunni upp í loftið og grípa hana aftur og Orra fannst vissara að taka það fram þegar hann kom með hringana að ég ætti að fá þennan minni hehe...mjög fyndið. Hekla Sif og Bjarni Dagur létu líka aðeins í sér heyra svona hér og þar, bara gaman:) Eftir athöfnina drifum við okkur í myndatöku í grasagarðinum, við máttum ekki staldra lengi við fyrir utan kirkjuna af því að það var þéttskipuð dagskrá í kirkjunni, brúðkaup kl 15, 16 og 17! Við vorum svo bara flott á því með tvo ljósmyndara á hælunum í grasagarðinum, pabbi og Steini, vinur hans Tedda sáu um myndatökuna. Við erum búin að fá eitthvað af myndunum frá pabba og það eru margar mjög fínar. Eigum svo eftir að fá myndirnar frá Steina. Svo rétt eftir kl 17 mættum við í veisluna og gestirnir tóku á móti okkur með sápukúlublæstri. Veislan heppnaðist mjög vel, Sóley fór á kostum sem veislustjóri, ég sagði við hana að hún ætti að gerast atvinnu wedding planner hehe en held að hún hafi nú alveg fengið nóg af brúðkaupsundirbúningi í bili:) Maturinn var mjög góður, get gefið Matta kokki mín bestu meðmæli. Það var létt stemning hjá gestunum sýndist okkur og gaman að hitta alla, eftir því sem ég hef heyrt þá skemmti fólk sér mjög vel. Við fengum svo óvænta gjöf frá systkinum Sæba í veislunni sem var söngatriði. Einar, nágranni Bjarna og Erlu söng fyrir okkur 4 lög, Valslagið, Ást við fyrstu sýn, Okkar nótt og Liverpool lagið, bara fyrir Sæba af því að hann er svo mikill Liverpool maður eða þannig:) Virkilega skemmtilegt og óvænt og frábær söngvari þar á ferð. Einar og Þór, frændi Sæba tóku svo Can't help falling in love, mjög flott hjá þeim. Gestirnir fóru svo að týnast burt um hálftíuleytið, við horfðum á flugeldasýninguna sem var auðvitað sérstaklega okkur til heiðurs og síðustu gestirnir voru að fara um ellefuleytið. Íris skutlaði okkur svo heim með afganginn af gjöfunum en mamma og pabbi höfðu farið með hluta af þeim fyrr um kvöldið. Hérna heima tók á móti okkur skreytt freyðivínsflaska og glös, súkkulaðihúðuð jarðarber og skreytt rúm, tengdamamma og vinkona hennar sáu um þessar skreytingar fyrir okkur, virkilega fallegt hjá þeim. Við skemmtum okkur svo við það að opna allar gjafirnar daginn eftir, biðum eftir að stelpurnar kæmu heima, svo að Katla gæti hjálpað okkur að opna. Við erum nú bara orðlaus yfir öllum gjöfunum sem við fengum, engar smá gjafir og við erum virkilega ánægð með þær allar. Erum svona smátt og smátt að hringja í alla til þess að þakka fyrir en ef einhver af gestunum skyldi lesa þetta þá innilegar þakkir fyrir okkur! Við fengum líka nokkur heillaskeyti og kort sem okkur þykir virkilega vænt um. En fallegasta kveðjan, að öllum öðrum ólöstuðum er þó kveðjan sem Katla skrifaði í gestabókina (án nokkurrar aðstoðar) en hún skrifaði: "Elsku Sævaldur og Rakel ástarhamingju með dæin Katla og Hekla" Algjör rúsína:) Dagurinn var semsagt yndislegur í alla staði og við svífum ennþá á bleiku skýi:) Vil líka þakka öllum sem hjálpuðu okkur við að gera daginn svona eftirminnilegan og sérstakan, ástarþakkir, kossar og knús til ykkar allra:)

Svo er hverdagslífið tekið við núna, svolítið skrítið eftir allan undirbúninginn. Ég byrja að vinna 1. sept og Katla Dögg er byrja í skólanum á fimmtudaginn, trúi því nú varla ennþá að hún sé að byrja í skóla, en þetta er nú farið að síast inn því að við fórum í viðtal í morgun og hittum kennarann hennar. Okkur leist báðum mjög vel á hana og Katla er orðin spennt fyrir að byrja. Við komumst líka að því að vinkona hennar sem býr hérna á hæðinni fyrir ofan verður í sama bekk, sem er ekki verra:) En ég ætla að fara að reyna að taka til hérna hjá mér og endurskipuleggja aðeins, það liggur við að við þurfum að fá okkur stærri íbúð til þess að koma öllum gjöfunum fyrir:)

Ég ætlaði að skella inn nokkrum myndum, en blogger er ekki til í það, geri það kannski seinna.

Kela at 22.8.06

"Life itself is the most wonderful fairy tale"
H.C. Andersen

*uppáhalds kvikmyndir

*bækurnar á náttborðinu:
-Inés of my soul eftir Isabel Allende
-Little moments of piece: Daily reflections for mothers eftir Andrea Alban Gosline


*tónlist

*blogg sem ég les
Nanna
Snyrtipinninn
Jana
Inga Sigga
Inga Rut
Birgitta frænka
Lísa cookiemonster
Stína
Anna Bogga
Sóley
Dísublogg
Valur-karfa
Kim
Pabbi
Árgangur'78 á Sigló
Erik
Adam Duritz

*tenglar
Stóra prinsessan
Litla prinsessan
Myndaalbúmið
Barnaland
Lífið á Sigló
Síldarminjasafnið
Kvikmyndir.is
Uppskriftir
Fleiri uppskriftir
Counting Crows
Survivor fever
Valur
Vídeóval
Galdrasýning á Ströndum
Kveiktu á kerti
Maður lifandi
Matargatið
J.K. Rowling
Café Sigrún
Póstkortaskipti
43 things
43 places
Póstkortabloggið
Flickr

*ýmislegt
gestabók
póstur
blogskins
blogger

*eldri skrif
20 október 2002 08 júní 2003 10 ágúst 2003 17 ágúst 2003 24 ágúst 2003 31 ágúst 2003 07 september 2003 14 september 2003 21 september 2003 05 október 2003 12 október 2003 19 október 2003 02 nóvember 2003 09 nóvember 2003 23 nóvember 2003 30 nóvember 2003 07 desember 2003 14 desember 2003 21 desember 2003 28 desember 2003 04 janúar 2004 11 janúar 2004 18 janúar 2004 25 janúar 2004 01 febrúar 2004 08 febrúar 2004 15 febrúar 2004 22 febrúar 2004 29 febrúar 2004 14 mars 2004 21 mars 2004 28 mars 2004 04 apríl 2004 11 apríl 2004 18 apríl 2004 25 apríl 2004 02 maí 2004 09 maí 2004 16 maí 2004 30 maí 2004 06 júní 2004 27 júní 2004 11 júlí 2004 18 júlí 2004 01 ágúst 2004 15 ágúst 2004 22 ágúst 2004 05 september 2004 12 september 2004 19 september 2004 26 september 2004 03 október 2004 10 október 2004 17 október 2004 24 október 2004 31 október 2004 07 nóvember 2004 14 nóvember 2004 21 nóvember 2004 05 desember 2004 12 desember 2004 02 janúar 2005 09 janúar 2005 23 janúar 2005 30 janúar 2005 06 febrúar 2005 27 febrúar 2005 06 mars 2005 03 apríl 2005 24 apríl 2005 15 maí 2005 22 maí 2005 05 júní 2005 26 júní 2005 24 júlí 2005 07 ágúst 2005 04 september 2005 11 september 2005 18 september 2005 02 október 2005 09 október 2005 16 október 2005 23 október 2005 30 október 2005 06 nóvember 2005 13 nóvember 2005 20 nóvember 2005 27 nóvember 2005 04 desember 2005 11 desember 2005 18 desember 2005 25 desember 2005 01 janúar 2006 15 janúar 2006 22 janúar 2006 29 janúar 2006 05 febrúar 2006 12 febrúar 2006 19 febrúar 2006 26 febrúar 2006 12 mars 2006 19 mars 2006 26 mars 2006 02 apríl 2006 09 apríl 2006 16 apríl 2006 23 apríl 2006 14 maí 2006 21 maí 2006 28 maí 2006 04 júní 2006 11 júní 2006 18 júní 2006 09 júlí 2006 16 júlí 2006 23 júlí 2006 06 ágúst 2006 13 ágúst 2006 20 ágúst 2006 27 ágúst 2006 03 september 2006 10 september 2006 17 september 2006 24 september 2006 01 október 2006 08 október 2006 22 október 2006 29 október 2006 05 nóvember 2006 12 nóvember 2006 26 nóvember 2006 03 desember 2006 10 desember 2006 17 desember 2006 24 desember 2006 31 desember 2006 21 janúar 2007 28 janúar 2007 04 febrúar 2007 11 febrúar 2007 18 febrúar 2007

FREE fantasy art e-cards at
wickedmoon.com!
Sendu vefkort!



*svona er veðrið hjá mér The WeatherPixie
Click for Reykjavik, Iceland Forecast Click for Reykjavik, Iceland Forecast
Site Meter