kelublogg - life itself is the most wonderful fairy tale

14.2.06

Ég hef verið eitthvað löt við að blogga að undanförnu...bæti aðeins úr því núna. Við fórum í sumarbústað um helgina. Það er alltaf jafn ljúft. Við lögðum af stað fljótlega eftir hádegið á föstudaginn...höfðum viðkomu í Bónus og keyptum alltof mikið..komum samt ekki með mikið til baka...einkennilegt hvað maður er alltaf svangur í sumarbústað:) Við vorum svo komin á leiðarenda um fjögurleytið...fórum þá bara að koma dótinu fyrir og kíkja á pottinn. Svo grilluðum við svínakjöt í kvöldmatinn...alveg frábært að fá grillmat...smá svona forsmekkur að sumrinu. Ég kíkti svo í gestabókina...sá þá að ég hafði einmitt verið fyrst til að skrifa í hana en við vorum í þessum bústað í viku sumarið 2004. Ég hafði skrifað litlar 4 síður um dvöl okkar þar og einhver af gestunum sem komu á eftir okkur hafði gefið mér nafnbótina "Ragga ritgerð" fyrir vikið..bara gaman að því:) Tek það fram að ég hef aldrei verið kölluð Ragga. Sæbi og Katla skelltu sér svo smástund í pottinn eftir að Latibær var búinn og svo fóru stelpurnar í rúmið. Við Sæbi fórum aðeins í pottinn eftir að þær voru sofnaðar og komst ég þá að því að ég er með alveg rosalega lítið hjarta...það er náttúrlega alveg svartamyrkur þarna í sveitinni og við vorum ekki búin að sjá merki þess að neitt fólk væri í næstu bústöðum en svo keyrir bíll framhjá og allt í lagi með það...nema hvað að þessi bíll kemur svo aftur og stoppar við bústaðinn okkar og ég varð bara dauðskelkuð..veit ekki hvað ég hélt að væri í gangi en ég flýtti mér uppúr pottinum og rauk inn í bústað hehe..bara með hjartslátt og læti...Sæbi kom svo á eftir og þá kom í ljós að þetta var ungt par á ferð sem var að fara að heimsækja vinafólk sitt þarna en fundu ekki bústaðinn...og síminn þeirra var orðinn batteríslaus þannig að þau fengu að hringja hjá okkur sem var sjálfsagt mál...en vá hvað mér brá! Bjarni, Erla og strákarnir og Sóley komu svo á laugardeginum og voru fram á sunnudag. Alveg frábær og endurnærandi helgi. Ég átti svo alltaf eftir að segja frá því að mér tókst loksins að velja á milli kjólanna sem ég var búin að vera að skoða á e-bay og bauð í einn og fékk hann!! Er mjög spennt..vona að hann passi og að ég verði ánægð með hann...mér finnst hann geggjaður á myndunum þannig að ég vona bara að hann standi undir væntingum. Svo kíkti ég í Smáralind í dag (og nei ég er ekki alltaf í Smáralind þó að það mætti halda það miðað við þessar síðustu færslur), fór nú aðallega til þess að kaupa afmælisgjöf handa Bjarna Degi sem er að verða eins árs! En fór svo að skoða skó í Hagkaup og fann þessa fínu hvítu skó með smá hæl og bara mjög flottir og kostuðu heilar 750 kr. ekki slæmt. Svo tókst mér að gleyma veskinu mínu í Smáralind..ekki í fyrsta skipti sem ég gleymi veskinu einhversstaðar og pottþétt ekki í það síðasta. Ég settist í sófa fyrir utan Hagkaup og var að gefa Heklu að drekka og klæða hana og var svo að verða of sein að sækja Kötlu í leikskólann, greip Heklu og pokana og var svo komin vel af stað þegar ég fattaði að ég hafði gleymt veskinu. Sneri við...flýtti mér að sófanum..ekkert veski þar..þannig að ég fór inn í Hagkaup og spurðist fyrir á þjónustuborðinu og jú einhver hafði skilað veskinu þangað:) Sem betur fer er til heiðarlegt fólk því að það var allt á sínum stað. Það voru reyndar ekki miklir peningar í veskinu en debetkortið mitt og vísakort og fullt af persónulegu dóti sem ég hefði ekki viljað týna. Þannig að þetta blessaðist allt saman. Var aðeins of sein að sækja Kötlu og Rosalie vinkona hennar kom með okkur...brunuðum svo Hafnarfjörð á körfuboltaæfingu og stelpurnar skemmtu sér vel og við Hekla Sif horfðum á. Það er svo gaman að fylgjast með henni þessa dagana...svo margt að gerast hjá henni...er mikið að æfa röddina hehe...vakti nokkrar athygli og uppskar mikið af brosum í búðarferðinni í dag. Svo er hún farin að geta setið óstudd smástund í einu...hún er svo fljót að stækka...verður einmitt 6 mánaða á morgun:)

Kela at 14.2.06

"Life itself is the most wonderful fairy tale"
H.C. Andersen

*uppáhalds kvikmyndir

*bækurnar á náttborðinu:
-Inés of my soul eftir Isabel Allende
-Little moments of piece: Daily reflections for mothers eftir Andrea Alban Gosline


*tónlist

*blogg sem ég les
Nanna
Snyrtipinninn
Jana
Inga Sigga
Inga Rut
Birgitta frænka
Lísa cookiemonster
Stína
Anna Bogga
Sóley
Dísublogg
Valur-karfa
Kim
Pabbi
Árgangur'78 á Sigló
Erik
Adam Duritz

*tenglar
Stóra prinsessan
Litla prinsessan
Myndaalbúmið
Barnaland
Lífið á Sigló
Síldarminjasafnið
Kvikmyndir.is
Uppskriftir
Fleiri uppskriftir
Counting Crows
Survivor fever
Valur
Vídeóval
Galdrasýning á Ströndum
Kveiktu á kerti
Maður lifandi
Matargatið
J.K. Rowling
Café Sigrún
Póstkortaskipti
43 things
43 places
Póstkortabloggið
Flickr

*ýmislegt
gestabók
póstur
blogskins
blogger

*eldri skrif
20 október 2002 08 júní 2003 10 ágúst 2003 17 ágúst 2003 24 ágúst 2003 31 ágúst 2003 07 september 2003 14 september 2003 21 september 2003 05 október 2003 12 október 2003 19 október 2003 02 nóvember 2003 09 nóvember 2003 23 nóvember 2003 30 nóvember 2003 07 desember 2003 14 desember 2003 21 desember 2003 28 desember 2003 04 janúar 2004 11 janúar 2004 18 janúar 2004 25 janúar 2004 01 febrúar 2004 08 febrúar 2004 15 febrúar 2004 22 febrúar 2004 29 febrúar 2004 14 mars 2004 21 mars 2004 28 mars 2004 04 apríl 2004 11 apríl 2004 18 apríl 2004 25 apríl 2004 02 maí 2004 09 maí 2004 16 maí 2004 30 maí 2004 06 júní 2004 27 júní 2004 11 júlí 2004 18 júlí 2004 01 ágúst 2004 15 ágúst 2004 22 ágúst 2004 05 september 2004 12 september 2004 19 september 2004 26 september 2004 03 október 2004 10 október 2004 17 október 2004 24 október 2004 31 október 2004 07 nóvember 2004 14 nóvember 2004 21 nóvember 2004 05 desember 2004 12 desember 2004 02 janúar 2005 09 janúar 2005 23 janúar 2005 30 janúar 2005 06 febrúar 2005 27 febrúar 2005 06 mars 2005 03 apríl 2005 24 apríl 2005 15 maí 2005 22 maí 2005 05 júní 2005 26 júní 2005 24 júlí 2005 07 ágúst 2005 04 september 2005 11 september 2005 18 september 2005 02 október 2005 09 október 2005 16 október 2005 23 október 2005 30 október 2005 06 nóvember 2005 13 nóvember 2005 20 nóvember 2005 27 nóvember 2005 04 desember 2005 11 desember 2005 18 desember 2005 25 desember 2005 01 janúar 2006 15 janúar 2006 22 janúar 2006 29 janúar 2006 05 febrúar 2006 12 febrúar 2006 19 febrúar 2006 26 febrúar 2006 12 mars 2006 19 mars 2006 26 mars 2006 02 apríl 2006 09 apríl 2006 16 apríl 2006 23 apríl 2006 14 maí 2006 21 maí 2006 28 maí 2006 04 júní 2006 11 júní 2006 18 júní 2006 09 júlí 2006 16 júlí 2006 23 júlí 2006 06 ágúst 2006 13 ágúst 2006 20 ágúst 2006 27 ágúst 2006 03 september 2006 10 september 2006 17 september 2006 24 september 2006 01 október 2006 08 október 2006 22 október 2006 29 október 2006 05 nóvember 2006 12 nóvember 2006 26 nóvember 2006 03 desember 2006 10 desember 2006 17 desember 2006 24 desember 2006 31 desember 2006 21 janúar 2007 28 janúar 2007 04 febrúar 2007 11 febrúar 2007 18 febrúar 2007

FREE fantasy art e-cards at
wickedmoon.com!
Sendu vefkort!



*svona er veðrið hjá mér The WeatherPixie
Click for Reykjavik, Iceland Forecast Click for Reykjavik, Iceland Forecast
Site Meter