kelublogg - life itself is the most wonderful fairy tale

2.11.05

Ég hef ekki haft mikinn tíma til þess að blogga að undanförnu, ætla að reyna að bæta aðeins úr núna. Var önnum kafin við að undirbúa skírnina hennar Heklu Sifjar sem var núna á sunnudaginn. Þetta tókst alltsaman mjög vel. Athöfnin var í Friðrikskapellu og sr. Vigfús Þór Árnason skírði. Okkur þótti gaman að fá hann til þess að skíra dömuna vegna þess að hann skírði mig og einnig Kötlu Dögg. Svo er hann líka bara sérlega almennilegur og skemmtilegur prestur. Sem dæmi um það þá var Hekla nú ekkert alltof sátt á meðan á athöfninni stóð (ég segi í gríni að hún eigi örugglega eftir að segja sig úr þjóðkirkjunni við fyrsta tækifæri, svo ósátt var hún) en hann var ekkert að stressa sig á hlutunum þó svo að hann ætti að vera mættur annarsstaðar strax á eftir okkar athöfn. Það kom líka í ljós að hann er mikill valsari sem spillti nú ekki fyrir:) Veislan var svo hérna heima strax á eftir og tókst mjög vel. Alltaf gaman og notalegt þegar fjölskyldan kemur saman. Veitingarnar voru líka mjög vel heppnaðar fannst mér. Við fengum líka ómetanlega hjálp við undirbúninginn frá mömmu og pabba. Daman fékk svo margar fallegar gjafir, takk kærlega fyrir okkur:) Núna þegar einni athöfn er lokið þá er ég farin að hugsa um þá næstu, en við skötuhjúin erum að hugsa um að gifta okkur næsta sumar. Erum ekki alveg búin að ákveða stað og stund en stefnan er sett á júlí eða ágúst. Ég er alveg á kafi í því að skoða kjóla núna. Er búin að ákveða að kjóllinn á að vera í keltneskum eða miðaldastíl eða einhverstaðar mitt á milli:) Ég er alveg veik fyrir kjólum í þessum stíl og er búin að vera að skoða á netinu. Er reyndar búin að finna draumakjólinn en hann kostar 1200 pund sem mér reiknast til að séu um það bil 130.000 kr. , sem er "aðeins" meira en það sem ég hafði hugsað mér að eyða í kjólinn. Ég er samt farin að hallast að því að kaupa frekar kjól heldur en að leigja. Ég hef nefnilega heyrt að það kosti á bilinu 20-40 þúsund að leigja kjól, en það er hægt að kaupa og jafnvel sérsaumaðan á netinu fyrir sama pening. En ég á eftir að skoða þetta alltsaman betur. Í þessari leit minni á netinu rakst ég m.a. á myndir af brúðhjónum sem giftu sig við Stonehenge, ég hefði nú ekkert á móti því, þetta var líka alveg hrikalega flott hjá þeim, brúðhjónin voru einmitt klædd í keltneskum stíl, bæði í skikkjum og bara mjög flott allt saman. Ég veit samt að Sæbi myndi ekki samþykkja svona brúðkaup:) En það verður bara að fara milliveginn og samningaleiðina. En það er nægur tími til stefnu ennþá og mjög gaman að spá í hvernig við viljum hafa þetta. Aðrar fréttir af okkur eru þær að Kötlu gengur mjög vel í körfuboltanum. Það er svo gaman að fylgjast með því hvað henni hefur farið fram. Hún er 2-3 árum yngri en hinar stelpurnar og var því getulega séð frekar mikið á eftir, enda þær allar búnar að æfa lengur en hún. Hún hitti t.d. ekki í körfurnar og var yfirleitt frekar langt frá því, náði ekki að kasta nógu hátt. En svo var eins og það kviknaði ljós hjá henni á einni æfingunni og allt í einu fór hún að ná þessu, er núna alveg farin að hitta og er að bæta sig mjög mikið. Það besta er hvað hún hefur gaman af þessu. Hún er mjög spennt núna því að næsta þriðjudag verður þemaæfing hjá þeim þar sem þær eiga allar að mæta með hatt og svo verður pizzapartý á eftir. Verður örugglega gaman hjá þeim.

Kela at 2.11.05

"Life itself is the most wonderful fairy tale"
H.C. Andersen

*uppáhalds kvikmyndir

*bækurnar á náttborðinu:
-Inés of my soul eftir Isabel Allende
-Little moments of piece: Daily reflections for mothers eftir Andrea Alban Gosline


*tónlist

*blogg sem ég les
Nanna
Snyrtipinninn
Jana
Inga Sigga
Inga Rut
Birgitta frænka
Lísa cookiemonster
Stína
Anna Bogga
Sóley
Dísublogg
Valur-karfa
Kim
Pabbi
Árgangur'78 á Sigló
Erik
Adam Duritz

*tenglar
Stóra prinsessan
Litla prinsessan
Myndaalbúmið
Barnaland
Lífið á Sigló
Síldarminjasafnið
Kvikmyndir.is
Uppskriftir
Fleiri uppskriftir
Counting Crows
Survivor fever
Valur
Vídeóval
Galdrasýning á Ströndum
Kveiktu á kerti
Maður lifandi
Matargatið
J.K. Rowling
Café Sigrún
Póstkortaskipti
43 things
43 places
Póstkortabloggið
Flickr

*ýmislegt
gestabók
póstur
blogskins
blogger

*eldri skrif
20 október 2002 08 júní 2003 10 ágúst 2003 17 ágúst 2003 24 ágúst 2003 31 ágúst 2003 07 september 2003 14 september 2003 21 september 2003 05 október 2003 12 október 2003 19 október 2003 02 nóvember 2003 09 nóvember 2003 23 nóvember 2003 30 nóvember 2003 07 desember 2003 14 desember 2003 21 desember 2003 28 desember 2003 04 janúar 2004 11 janúar 2004 18 janúar 2004 25 janúar 2004 01 febrúar 2004 08 febrúar 2004 15 febrúar 2004 22 febrúar 2004 29 febrúar 2004 14 mars 2004 21 mars 2004 28 mars 2004 04 apríl 2004 11 apríl 2004 18 apríl 2004 25 apríl 2004 02 maí 2004 09 maí 2004 16 maí 2004 30 maí 2004 06 júní 2004 27 júní 2004 11 júlí 2004 18 júlí 2004 01 ágúst 2004 15 ágúst 2004 22 ágúst 2004 05 september 2004 12 september 2004 19 september 2004 26 september 2004 03 október 2004 10 október 2004 17 október 2004 24 október 2004 31 október 2004 07 nóvember 2004 14 nóvember 2004 21 nóvember 2004 05 desember 2004 12 desember 2004 02 janúar 2005 09 janúar 2005 23 janúar 2005 30 janúar 2005 06 febrúar 2005 27 febrúar 2005 06 mars 2005 03 apríl 2005 24 apríl 2005 15 maí 2005 22 maí 2005 05 júní 2005 26 júní 2005 24 júlí 2005 07 ágúst 2005 04 september 2005 11 september 2005 18 september 2005 02 október 2005 09 október 2005 16 október 2005 23 október 2005 30 október 2005 06 nóvember 2005 13 nóvember 2005 20 nóvember 2005 27 nóvember 2005 04 desember 2005 11 desember 2005 18 desember 2005 25 desember 2005 01 janúar 2006 15 janúar 2006 22 janúar 2006 29 janúar 2006 05 febrúar 2006 12 febrúar 2006 19 febrúar 2006 26 febrúar 2006 12 mars 2006 19 mars 2006 26 mars 2006 02 apríl 2006 09 apríl 2006 16 apríl 2006 23 apríl 2006 14 maí 2006 21 maí 2006 28 maí 2006 04 júní 2006 11 júní 2006 18 júní 2006 09 júlí 2006 16 júlí 2006 23 júlí 2006 06 ágúst 2006 13 ágúst 2006 20 ágúst 2006 27 ágúst 2006 03 september 2006 10 september 2006 17 september 2006 24 september 2006 01 október 2006 08 október 2006 22 október 2006 29 október 2006 05 nóvember 2006 12 nóvember 2006 26 nóvember 2006 03 desember 2006 10 desember 2006 17 desember 2006 24 desember 2006 31 desember 2006 21 janúar 2007 28 janúar 2007 04 febrúar 2007 11 febrúar 2007 18 febrúar 2007

FREE fantasy art e-cards at
wickedmoon.com!
Sendu vefkort!



*svona er veðrið hjá mér The WeatherPixie
Click for Reykjavik, Iceland Forecast Click for Reykjavik, Iceland Forecast
Site Meter