kelublogg - life itself is the most wonderful fairy tale

19.11.05

Ég fór með Heklu í skoðun á föstudaginn, að þessu sinni mætti ég á réttum tíma:) Það gekk vel, hún er orðin 6.325 gr. og 59 cm. heldur alveg sinni kúrfu. Svo fékk hún sína fyrstu sprautu, óhætt að segja að hún hafi ekki verið ánægð með það, en hún var nú reyndar fljót að jafna sig. Katla er öll að hressast, hún fékk að fara til vinkonu sinnar í dag og gistir þar í nótt. Hún er búin að hlakka til í örugglega 2 vikur, eða alveg síðan þetta var ákveðið, þannig að það varð nú að leyfa henni að fara þrátt fyrir veikindin. Hún er líka nánast orðin hress, laus við hitann og hóstar miklu minna. Ég skutlaði henni þangað um fjögurleytið og svo fórum við Hekla í Smáralind. Ætlunin var að kaupa nokkrar jólagjafir, ég keypti nú reyndar ekki nema eina en það er þó betra en ekkert. Keypti mér líka sæta eyrnalokka og svo fann ég Mr. Bean á dvd í Tiger á 400 kr. gat nú ekki sleppt því, ætla að horfa á hann á eftir ef Hekla verður samvinnuþýð:) Það var annars alveg fullt af fólki í Smáralindinni, greinilegt að jólaösin er byrjuð. Hekla var bara hin kátasta með þetta, fannst greinilega ekkert leiðinlegt að fara í smá verslunarleiðangur. Við kíktum svo aðeins á Dagný vinkonu áður en við fórum heim, er búin að vera á leiðinni til hennar svo lengi að ég mátti til með að láta verða af því núna. Alltaf gaman að hitta hana. Nýjasti LOST þátturinn bíður svo sjóðheitur í tölvunni, en ég er svoddan hæna að ég þori ekki að horfa á hann fyrr en Sæbi kemur heim, síðasti þáttur var mjög svo spooky! En ég er farin að horfa á Bean:)

Kela at 19.11.05

15.11.05

Ja hérna, þessi dagur stefnir í að verða "one of those days"....ég var alveg 100% viss um að ég ætti að mæta með Heklu Sif í þriggja mánaða skoðun í dag, veit ekki af hverju ég var svona hrikalega föst á þessari dagsetningu 15. nóvember, en allavega reif mig á fætur í morgun, Sæbi fékk að mæta seinna í vinnuna af því að Katla er lasin. Vakti skonsuna af værum blundi og dúðaði okkur út í kuldann, var á síðustu stundu eins og alltaf en náði þó á heilsugæsluna á réttum tíma. Hitti þar einhverja hjúkku sem kannaðist bara ekkert við að eiga von á okkur. Ég hélt það nú, við ættum sko aldeilis pantaðan tíma, var að byrja að setja mig í smá pirringsstellingar á meðan hún fór fram til þess að tékka á þessu í tölvunni. Datt þá í hug að kíkja á minnistatriðin í símanum mínum og þar blasti þetta við tími 18. nóvember! Ekkert annað að gera en að setja upp vandræðalegt bros...ehhh....þetta er víst ekki fyrr en á föstudaginn...og koma sér út. Var sem betur fer ekki búin að klæða Heklu úr, henni finnst nú nógu leiðinlegt að láta klæða sig í og úr þó að það sé ekki verið að því að óþörfu. En fyrst ég var nú komin út þá dreif ég mig í Nettó og verslaði smá. Svo þegar ég ætlaði að skella pokunum í bílinn þá tók ekki betra við, læsingarnar frosnar fastar, þannig að það tók smá tíma að reyna að juða lyklinum í og opna, en tókst sem betur fer á endanum. Svo er bara að reyna að gera það besta úr deginum. Katla Dögg er frekar súr yfir því að þurfa að hanga heima og ég skil hana vel, ekkert gaman að hangsa með mömmu og litlu systur og svo missir hún af körfuboltaæfingu í dag í þokkabót. Svo á morgun er afmælishátíð í leikskólanum, Fálkaborg er 25 ára á morgun. Ég vona að hún verði orðin hress og geti mætt á morgun.

Kela at 15.11.05

14.11.05





Take the Which Neighbour Are You? Quiz, hosted by Neighbours: The Perfect Blend.


Hmmm....já, ég er víst Harold Bishop...verð bara að taka því, var allavega fegin að vera einhver sem ég kannast við úr þáttunum, hef svo lítið fylgst með þessum þáttum að undanförnu.

Kela at 14.11.05

"Life itself is the most wonderful fairy tale"
H.C. Andersen

*uppáhalds kvikmyndir

*bækurnar á náttborðinu:
-Inés of my soul eftir Isabel Allende
-Little moments of piece: Daily reflections for mothers eftir Andrea Alban Gosline


*tónlist

*blogg sem ég les
Nanna
Snyrtipinninn
Jana
Inga Sigga
Inga Rut
Birgitta frænka
Lísa cookiemonster
Stína
Anna Bogga
Sóley
Dísublogg
Valur-karfa
Kim
Pabbi
Árgangur'78 á Sigló
Erik
Adam Duritz

*tenglar
Stóra prinsessan
Litla prinsessan
Myndaalbúmið
Barnaland
Lífið á Sigló
Síldarminjasafnið
Kvikmyndir.is
Uppskriftir
Fleiri uppskriftir
Counting Crows
Survivor fever
Valur
Vídeóval
Galdrasýning á Ströndum
Kveiktu á kerti
Maður lifandi
Matargatið
J.K. Rowling
Café Sigrún
Póstkortaskipti
43 things
43 places
Póstkortabloggið
Flickr

*ýmislegt
gestabók
póstur
blogskins
blogger

*eldri skrif
20 október 2002 08 júní 2003 10 ágúst 2003 17 ágúst 2003 24 ágúst 2003 31 ágúst 2003 07 september 2003 14 september 2003 21 september 2003 05 október 2003 12 október 2003 19 október 2003 02 nóvember 2003 09 nóvember 2003 23 nóvember 2003 30 nóvember 2003 07 desember 2003 14 desember 2003 21 desember 2003 28 desember 2003 04 janúar 2004 11 janúar 2004 18 janúar 2004 25 janúar 2004 01 febrúar 2004 08 febrúar 2004 15 febrúar 2004 22 febrúar 2004 29 febrúar 2004 14 mars 2004 21 mars 2004 28 mars 2004 04 apríl 2004 11 apríl 2004 18 apríl 2004 25 apríl 2004 02 maí 2004 09 maí 2004 16 maí 2004 30 maí 2004 06 júní 2004 27 júní 2004 11 júlí 2004 18 júlí 2004 01 ágúst 2004 15 ágúst 2004 22 ágúst 2004 05 september 2004 12 september 2004 19 september 2004 26 september 2004 03 október 2004 10 október 2004 17 október 2004 24 október 2004 31 október 2004 07 nóvember 2004 14 nóvember 2004 21 nóvember 2004 05 desember 2004 12 desember 2004 02 janúar 2005 09 janúar 2005 23 janúar 2005 30 janúar 2005 06 febrúar 2005 27 febrúar 2005 06 mars 2005 03 apríl 2005 24 apríl 2005 15 maí 2005 22 maí 2005 05 júní 2005 26 júní 2005 24 júlí 2005 07 ágúst 2005 04 september 2005 11 september 2005 18 september 2005 02 október 2005 09 október 2005 16 október 2005 23 október 2005 30 október 2005 06 nóvember 2005 13 nóvember 2005 20 nóvember 2005 27 nóvember 2005 04 desember 2005 11 desember 2005 18 desember 2005 25 desember 2005 01 janúar 2006 15 janúar 2006 22 janúar 2006 29 janúar 2006 05 febrúar 2006 12 febrúar 2006 19 febrúar 2006 26 febrúar 2006 12 mars 2006 19 mars 2006 26 mars 2006 02 apríl 2006 09 apríl 2006 16 apríl 2006 23 apríl 2006 14 maí 2006 21 maí 2006 28 maí 2006 04 júní 2006 11 júní 2006 18 júní 2006 09 júlí 2006 16 júlí 2006 23 júlí 2006 06 ágúst 2006 13 ágúst 2006 20 ágúst 2006 27 ágúst 2006 03 september 2006 10 september 2006 17 september 2006 24 september 2006 01 október 2006 08 október 2006 22 október 2006 29 október 2006 05 nóvember 2006 12 nóvember 2006 26 nóvember 2006 03 desember 2006 10 desember 2006 17 desember 2006 24 desember 2006 31 desember 2006 21 janúar 2007 28 janúar 2007 04 febrúar 2007 11 febrúar 2007 18 febrúar 2007

FREE fantasy art e-cards at
wickedmoon.com!
Sendu vefkort!



*svona er veðrið hjá mér The WeatherPixie
Click for Reykjavik, Iceland Forecast Click for Reykjavik, Iceland Forecast
Site Meter