kelublogg - life itself is the most wonderful fairy tale

8.12.05

Persónuleikapróf
Þú hefur hlotið 36 stig

Persónuleiki þess sem fær á milli 31-40 stig:
Annað fólk skynjar þig sem varkára, hagsýna vitsmunaveru. Þú þykir snjöll, hæfileikarík en hógvær persóna. Ekki manneskja sem eignast vini of auðveldlega en ert mjög trygg vinum þínum og ætlast til sama trygglyndis til baka. Þeir sem kynnast þér virkilega vel átta sig á því að það þarf býsna mikið til að glata trausti þínu, en ef það gerist tekur það langan tíma að gróa og gerist jafnvel aldrei.

Hver varstu í fyrra lífi?

Niðurstöðurnar:
--------------------------------------------------------------------------------
Ég veit svo sem ekki hvað þér finnst um það...en þú varst karlmaður í þinni síðustu tilvist.
Þú fæddist í síðasta lífi á stað nálægt Wales á því herrans ári 1750.
Þú starfaðir sem: leikritaskáld, leikstjóri, hljómlistarmaður og ljóðskáld.
--------------------------------------------------------------------------------
Hér er stutt lýsing á þér og högum þínum í síðasta lífi:
Þú hafðir ríkjandi þörf til þess að ferðast og til að rannsaka alla hluti. Gætir hæglega hafa verið rannsóknaraðili og/eða njósnari.
--------------------------------------------------------------------------------
Hvaða skilaboð færir fyrra líf þér til þessarar jarðvistar?
Þín skilaboð eru: Sigrastu á afbrýðissemi og reiði í garð annarra. Þú verður að átta þig á því að lágt sjálfsmat og ótti er orsök þessara veikleika.
--------------------------------------------------------------------------------
Er þetta ekki að rifjast upp núna? - Farnist þér vel

Ég veit nú bara alls ekki hvað mér finnst um að hafa verið karlmaður í fyrra lífi..hmmm...og árið 1750...hvað var ég eiginlega að gera í millitíðinni?

Kela at 8.12.05

7.12.05


Sit hér og smjatta á súkkulaðiköku...fann þessa fínu uppskrift að hollustu- súkkulaðiköku á netinu og var að prófa. Hún er bara nokkuð góð verð ég að segja, verður eiginlega betri eftir því sem ég borða meira af henni. Væri ennþá betri með þeyttum rjóma er ég viss um. Kakan er nánast sykurlaus, bara smá sykur í eplamaukinu sem ég notaði, en það er ekkert til að tala um. Skellti uppskriftinni inn á matargatið. Er svo að hlusta á Katie Melua. Ég var svo heppin að vinna disk með henni á létt í gær. Diskurinn er eiginlega eins og kakan, verður betri eftir því sem ég hlusta meira á hann. Kannski maður spái í að skella sér á tónleikana í mars. Set svo mynd af kökunni hérna með, bara svona af því að ég hef ekkert betra að gera:)

Kela at 7.12.05

5.12.05



Fallegar systur:)

Kela at 5.12.05


Kominn mánudagur eina ferðina enn, ótrúlegt hvað vikurnar fljúga áfram í desember:) Við kláruðum að mála um helgina (lesist Sæbi kláraði að mála um helgina:). Þvílíkt fegin að þetta sé búið. Kemur líka bara mjög vel út. Leiðinlegi ljósblái liturinn horfinn og í staðinn komið gult eldhús og stofa og grár gangur. Við höfðum smá efasemdir um gula litinn þegar við vorum að byrja að mála, hann leit út fyrir að vera svo brjálæðislega gulur í fyrstu. En svo þegar hann er kominn á allt og búið að fínisera og svona þá lítur þetta mjög vel út, hressandi tilbreyting bara:)
Við fórum á jólagleði hjá kramhúsinu á sunnudagsmorguninn. Leiklistarnámskeiðinu sem Katla var á var að ljúka og krakkarnir voru að sýna afraksturinn. Þetta var mjög skemmtilegt. Kötlu hópur sýndi leikrit um Þyrnirós, frekar óhefðbundin útfærsla, hehe, það voru t.d. þrjár Þyrnirósar, ein góð álfkona og svo voru leikararnir mis upplagðir til þess að leika:) Katla stóð sig frábærlega í hlutverki góðu álfkonunnar, nema hvað:) Svo voru þarna nokkrir aðrir hópar sem sýndu sitt, það voru sungin jólalög og dansað, skemmtileg stund. Ég er samt pínu fegin að námskeiðið skulið vera búið, að því leyti að þá þurfum við ekki lengur að rífa okkur út kl. 10 á laugardagsmorgnum, Katla sagðist líka hlakka til að geta núna hangsað á náttfötunum á laugardögum:) Hún er samt búin að hafa mjög gaman af þessu, það vantar ekki. Við kíktum svo aðeins í Blómaval í gær og bættum við jólaskrautið, þannig að núna er bara að henda sér í skreytingarnar, ekki eftir neinu að bíða!

Kela at 5.12.05

"Life itself is the most wonderful fairy tale"
H.C. Andersen

*uppáhalds kvikmyndir

*bækurnar á náttborðinu:
-Inés of my soul eftir Isabel Allende
-Little moments of piece: Daily reflections for mothers eftir Andrea Alban Gosline


*tónlist

*blogg sem ég les
Nanna
Snyrtipinninn
Jana
Inga Sigga
Inga Rut
Birgitta frænka
Lísa cookiemonster
Stína
Anna Bogga
Sóley
Dísublogg
Valur-karfa
Kim
Pabbi
Árgangur'78 á Sigló
Erik
Adam Duritz

*tenglar
Stóra prinsessan
Litla prinsessan
Myndaalbúmið
Barnaland
Lífið á Sigló
Síldarminjasafnið
Kvikmyndir.is
Uppskriftir
Fleiri uppskriftir
Counting Crows
Survivor fever
Valur
Vídeóval
Galdrasýning á Ströndum
Kveiktu á kerti
Maður lifandi
Matargatið
J.K. Rowling
Café Sigrún
Póstkortaskipti
43 things
43 places
Póstkortabloggið
Flickr

*ýmislegt
gestabók
póstur
blogskins
blogger

*eldri skrif
20 október 2002 08 júní 2003 10 ágúst 2003 17 ágúst 2003 24 ágúst 2003 31 ágúst 2003 07 september 2003 14 september 2003 21 september 2003 05 október 2003 12 október 2003 19 október 2003 02 nóvember 2003 09 nóvember 2003 23 nóvember 2003 30 nóvember 2003 07 desember 2003 14 desember 2003 21 desember 2003 28 desember 2003 04 janúar 2004 11 janúar 2004 18 janúar 2004 25 janúar 2004 01 febrúar 2004 08 febrúar 2004 15 febrúar 2004 22 febrúar 2004 29 febrúar 2004 14 mars 2004 21 mars 2004 28 mars 2004 04 apríl 2004 11 apríl 2004 18 apríl 2004 25 apríl 2004 02 maí 2004 09 maí 2004 16 maí 2004 30 maí 2004 06 júní 2004 27 júní 2004 11 júlí 2004 18 júlí 2004 01 ágúst 2004 15 ágúst 2004 22 ágúst 2004 05 september 2004 12 september 2004 19 september 2004 26 september 2004 03 október 2004 10 október 2004 17 október 2004 24 október 2004 31 október 2004 07 nóvember 2004 14 nóvember 2004 21 nóvember 2004 05 desember 2004 12 desember 2004 02 janúar 2005 09 janúar 2005 23 janúar 2005 30 janúar 2005 06 febrúar 2005 27 febrúar 2005 06 mars 2005 03 apríl 2005 24 apríl 2005 15 maí 2005 22 maí 2005 05 júní 2005 26 júní 2005 24 júlí 2005 07 ágúst 2005 04 september 2005 11 september 2005 18 september 2005 02 október 2005 09 október 2005 16 október 2005 23 október 2005 30 október 2005 06 nóvember 2005 13 nóvember 2005 20 nóvember 2005 27 nóvember 2005 04 desember 2005 11 desember 2005 18 desember 2005 25 desember 2005 01 janúar 2006 15 janúar 2006 22 janúar 2006 29 janúar 2006 05 febrúar 2006 12 febrúar 2006 19 febrúar 2006 26 febrúar 2006 12 mars 2006 19 mars 2006 26 mars 2006 02 apríl 2006 09 apríl 2006 16 apríl 2006 23 apríl 2006 14 maí 2006 21 maí 2006 28 maí 2006 04 júní 2006 11 júní 2006 18 júní 2006 09 júlí 2006 16 júlí 2006 23 júlí 2006 06 ágúst 2006 13 ágúst 2006 20 ágúst 2006 27 ágúst 2006 03 september 2006 10 september 2006 17 september 2006 24 september 2006 01 október 2006 08 október 2006 22 október 2006 29 október 2006 05 nóvember 2006 12 nóvember 2006 26 nóvember 2006 03 desember 2006 10 desember 2006 17 desember 2006 24 desember 2006 31 desember 2006 21 janúar 2007 28 janúar 2007 04 febrúar 2007 11 febrúar 2007 18 febrúar 2007

FREE fantasy art e-cards at
wickedmoon.com!
Sendu vefkort!



*svona er veðrið hjá mér The WeatherPixie
Click for Reykjavik, Iceland Forecast Click for Reykjavik, Iceland Forecast
Site Meter