kelublogg - life itself is the most wonderful fairy tale

4.3.06

Stal þessu af blogginu hennar Jönu..alltaf gaman að svona spurningadæmi:)

Hefur þú... ?

(x) reykt sígarettu (hafa ekki allir prófað einhverntíma?)

( ) klesst bíl vinar/vinkonu

( ) stolið bíl

(x) verið ástfangin/n

(x)verið sagt upp af kærasta/kærustu

( )verið rekin/n

(x)lent í slagsmálum (bara við Jóa bróður hehe)

( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum

(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki

( ) verið handtekin/n

( ) farið á blint stefnumót

(x) logið að vini/vinkonu :( (hvít lygi)

(x) skrópað í skólanum

( ) horft á einhvern deyja ef dýr teljast með

( ) farið til Canada

( ) farið til Mexico

(x) ferðast í flugvél

( ) kveikt í þér viljandi

( ) borðað sushi

( ) farið á sjóskíði

(x ) farið á skíði

(x) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu

(x) farið á tónleika

(x) tekið verkjalyf

(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna

(x) legið á bakinu úti og horft á skýin

(x) búið til snjóengil

(x) haldið kaffiboð

(x) flogið flugdreka

(x) byggt sandkastala

(x) hoppað í pollum

(x ) farið í "tískuleik" (dress up)

(x) hoppað í laufblaðahrúgu

(x) rennt þér á sleða

(x) svindlað í leik (örugglega einhverntíma þegar ég var lítil)

(x) verið einmana

(x) sofnað í vinnunni/skólanum (bara í íslensku hjá Steingrími Braga)

( ) notað falsað skilríki

(x) horft á sólarlagið

(x) fundið jarðskjálfta

( ) sofið undir berum himni (tjald telst þá væntalega ekki með eða hvað?)

(x) verið kitluð/kitlaður

( ) verið rænd/rændur

(x) verið misskilin/n

(x ) klappað hreindýri/geit/kengúru (bara geit í Húsdýragarðinum)

( ) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi

( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla

(x) lent í bílslysi

( ) verið með spangir/góm

(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni

( ) borðað líter af ís á einu kvöldi

(x) fengið deja vu (oft)

( ) dansað í tunglskininu

(x) fundist þú líta vel út

( ) verið vitni að glæp

(x) efast um að hjartað segði þér rétt til

( ) verið gagntekin/n af post-it miðum

(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni

(x) verið týnd/ur

( ) synt í sjónum

(x) fundist þú vera að deyja

(x) grátið þig í svefn

(x) farið í löggu og bófa leik

( ) sungið í karaókí

(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (Suðurgötubúar hehe)

(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki

(x) hringt símahrekk (bara símaat þegar ég var yngri)

(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér

(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni

(x ) dansað í rigningunni

( ) skrifað bréf til jólasveinsins (ekki svo ég muni)

( ) verið kysst/ur undir mistilteini

(x ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um

(x) blásið sápukúlur

( ) kveikt bál á ströndinni/fjörunni

(x ) komið óboðin/n í partý (meira bara að ég hafi lent þar..ekki komið viljandi óboðin)

( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í

(x ) farið á rúlluskauta/línuskauta

(x) hefur einhver óska þinna ræst

( ) farið í fallhlífastökk (myndi ekki þora!)

( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig

(x) pissað úti

Kela at 4.3.06


You scored as Anthropology. You should be an Anthropology major!

Sociology

83%

Anthropology

83%

Journalism

75%

Psychology

67%

Philosophy

67%

English

58%

Mathematics

50%

Biology

50%

Theater

42%

Art

33%

Linguistics

25%

Chemistry

8%

Engineering

8%

Dance

8%

What is your Perfect Major? (PLEASE RATE ME!!<3)
created with QuizFarm.com


Þá veit ég það..mannfræði here I come! Ég kláraði loksins Harry Potter og blendingsprinsinn í gær, er búin að vera með hana endalaust lengi á bókasafninu...gaf mér aldrei tíma til þess að byrja almennilega á henni en loksins þegar ég sökkti mér í hana þá gat ég ekki hætt. Verst að næsta (og sennilega síðasta) bók kemur sennilega út fyrr en einhverntíma á næsta ári.....

Kela at 4.3.06

28.2.06

Ég skrapp í Einu sinni var áðan, það var frekar mikið að gera og flestir að kaupa öskudagsbúninga eða öllu heldur Silvíu Nætur búninga...hehe...hver einasta stelpa sem kom inn ætlaði sko að vera Silvía Nótt! Allir flottu prinsessu og álfadísabúningarnir hreyfðust ekki úr hillunum. Þetta var bara eins og atriðið í Spaugstofunni um daginn nema hvað að þær í Einu sinni var hafa greinilega verið sniðugar og birgt sig upp af öllu sem þarf til þess að dressa sig upp eins og Silvía Nótt:) Það verður því greinilega ekki þverfótað fyrir litlum Silvíum á morgun...fegin er ég að vera ekki að vinna í búð! Mér finnst Silvía Nótt reyndar fín.....í hófi en gæti trúað að ég yrði farin að berja hausnum utan í vegg eftir að heyra "Til hamingju Ísland" í tvöhundraðasta skiptið og þurfa að díla við endalaust af litlum skvísum með Silvíu stælana á hreinu!

Kela at 28.2.06

27.2.06

Bolla bolla!! Við vöknuðum við bolludagsflengingu frá Kötlu í morgun hehe og óskir um "gleðilegan bolludag"..algjör rúsína:) Annars vorum við nú með bollukaffið í gær..mjög gott...og ég kláraði svo síðustu 2 bollurnar áðan...algjör óþarfi að láta þær skemmast:) Ég ætla svo að vera þjóðleg á morgun og elda saltkjöt og baunir í fyrsta skiptið. Hef einhvern vegin aldrei nennt að elda þetta sjálf áður (þó að það sé nú ekki flókið) af því að ég hef alltaf fengið saltkjöt í vinnunni, Sæbi líka í vinnunni hjá sér og Katla í leikskólanum, þannig að það hefur nú ekki verið mikill tilgangur með því að vera að hafa þetta heima líka. En nú verð ég bara að standa mig sem heimavinnandi húsmóðir og redda þessu sjálf. Hlakka reyndar til, mér finnst saltkjöt og baunir mjög góður matur. Ég fór svo loksins í bíó í gær, kominn tími til,hafði ekki farið síðan í júlí, held að það sé nú bara persónulegt met. Við Lísa skelltum okkur á Casanova, mæli 100% með henni, mjög skemmtileg og flott mynd! Heath Ledger er líka fantagóður leikari, er alltaf að sjá það betur og betur.

Kela at 27.2.06

"Life itself is the most wonderful fairy tale"
H.C. Andersen

*uppáhalds kvikmyndir

*bækurnar á náttborðinu:
-Inés of my soul eftir Isabel Allende
-Little moments of piece: Daily reflections for mothers eftir Andrea Alban Gosline


*tónlist

*blogg sem ég les
Nanna
Snyrtipinninn
Jana
Inga Sigga
Inga Rut
Birgitta frænka
Lísa cookiemonster
Stína
Anna Bogga
Sóley
Dísublogg
Valur-karfa
Kim
Pabbi
Árgangur'78 á Sigló
Erik
Adam Duritz

*tenglar
Stóra prinsessan
Litla prinsessan
Myndaalbúmið
Barnaland
Lífið á Sigló
Síldarminjasafnið
Kvikmyndir.is
Uppskriftir
Fleiri uppskriftir
Counting Crows
Survivor fever
Valur
Vídeóval
Galdrasýning á Ströndum
Kveiktu á kerti
Maður lifandi
Matargatið
J.K. Rowling
Café Sigrún
Póstkortaskipti
43 things
43 places
Póstkortabloggið
Flickr

*ýmislegt
gestabók
póstur
blogskins
blogger

*eldri skrif
20 október 2002 08 júní 2003 10 ágúst 2003 17 ágúst 2003 24 ágúst 2003 31 ágúst 2003 07 september 2003 14 september 2003 21 september 2003 05 október 2003 12 október 2003 19 október 2003 02 nóvember 2003 09 nóvember 2003 23 nóvember 2003 30 nóvember 2003 07 desember 2003 14 desember 2003 21 desember 2003 28 desember 2003 04 janúar 2004 11 janúar 2004 18 janúar 2004 25 janúar 2004 01 febrúar 2004 08 febrúar 2004 15 febrúar 2004 22 febrúar 2004 29 febrúar 2004 14 mars 2004 21 mars 2004 28 mars 2004 04 apríl 2004 11 apríl 2004 18 apríl 2004 25 apríl 2004 02 maí 2004 09 maí 2004 16 maí 2004 30 maí 2004 06 júní 2004 27 júní 2004 11 júlí 2004 18 júlí 2004 01 ágúst 2004 15 ágúst 2004 22 ágúst 2004 05 september 2004 12 september 2004 19 september 2004 26 september 2004 03 október 2004 10 október 2004 17 október 2004 24 október 2004 31 október 2004 07 nóvember 2004 14 nóvember 2004 21 nóvember 2004 05 desember 2004 12 desember 2004 02 janúar 2005 09 janúar 2005 23 janúar 2005 30 janúar 2005 06 febrúar 2005 27 febrúar 2005 06 mars 2005 03 apríl 2005 24 apríl 2005 15 maí 2005 22 maí 2005 05 júní 2005 26 júní 2005 24 júlí 2005 07 ágúst 2005 04 september 2005 11 september 2005 18 september 2005 02 október 2005 09 október 2005 16 október 2005 23 október 2005 30 október 2005 06 nóvember 2005 13 nóvember 2005 20 nóvember 2005 27 nóvember 2005 04 desember 2005 11 desember 2005 18 desember 2005 25 desember 2005 01 janúar 2006 15 janúar 2006 22 janúar 2006 29 janúar 2006 05 febrúar 2006 12 febrúar 2006 19 febrúar 2006 26 febrúar 2006 12 mars 2006 19 mars 2006 26 mars 2006 02 apríl 2006 09 apríl 2006 16 apríl 2006 23 apríl 2006 14 maí 2006 21 maí 2006 28 maí 2006 04 júní 2006 11 júní 2006 18 júní 2006 09 júlí 2006 16 júlí 2006 23 júlí 2006 06 ágúst 2006 13 ágúst 2006 20 ágúst 2006 27 ágúst 2006 03 september 2006 10 september 2006 17 september 2006 24 september 2006 01 október 2006 08 október 2006 22 október 2006 29 október 2006 05 nóvember 2006 12 nóvember 2006 26 nóvember 2006 03 desember 2006 10 desember 2006 17 desember 2006 24 desember 2006 31 desember 2006 21 janúar 2007 28 janúar 2007 04 febrúar 2007 11 febrúar 2007 18 febrúar 2007

FREE fantasy art e-cards at
wickedmoon.com!
Sendu vefkort!



*svona er veðrið hjá mér The WeatherPixie
Click for Reykjavik, Iceland Forecast Click for Reykjavik, Iceland Forecast
Site Meter