kelublogg - life itself is the most wonderful fairy tale

19.10.05

Ég var að hlusta á fyrsta kaflann í nýju bókinni eftir Arnald Indriðason, Vetrarborgin heitir hún. Lofar góðu finnst mér, hlakka til að lesa þessa bók. Ég er ekki búin að lesa allar bækurnar hans en er að vinna í því. Tók Bettý á bókasafninu um daginn en er reyndar ekki byrjuð á henni. Hún er víst öðruvísi en hinar bækurnar þar sem að Erlendur, Sigurður Óli og Elínborg koma ekki við sögu. Mér finnst þau þrjú mjög skemmtilegar persónur. Hlakka líka til að sjá kvikmyndina sem verður gerð eftir Mýrinni. Mér finnst reyndar svolítið skrítið að hugsa um Ingvar E. Sigurðsson sem Erlend, var búin að sjá hann allt öðruvísi fyrir mér. Ég var alveg hrikalega dugleg í dag og verslaði 6 jólagjafir, þurfti reyndar ekki að fara útúr húsi til þess og ekki einu sinni að standa upp úr sófanum. Verslaði þetta allt á netinu í gegnum shopusa. Hef ekki verslað í gegnum þá áður, en við Sæbi ákváðum að prófa þetta núna. Þá er maður öruggari um að þetta berist fyrir jól. Við keyptum nefnilega jólagjöf handa Kötlu á netinu í fyrra og hún kom ekki fyrr en í janúar. Kom reyndar ekki að sök, breyttist bara í afmælisgjöf handa henni. Er þvílíkt ánægð að vera komin vel af stað í jólagjafakaupum. Við erum líka búin að ákveða flestar aðrar gjafir þannig að þá er bara að kaupa þær smátt og smátt. Þægilegt að dreifa þessu aðeins og vera ekki í stressi rétt fyrir jól. Var þvílíkt sátt í dag þegar ég rakst á sykurlausan grænan ópal í Bónus. Fínt að geta smjattað á grænum ópal aftur:) En ég er farin að horfa á heimildarmynd um trekkara á rúv. Greinilega stórundarlegt fólk, hehe, kemur svosem ekki á óvart:)

Kela at 19.10.05


Ég er meðlimur á nokkrum póstlistum eða umræðuhópum á netinu. Sá sem ég hef verið með í lengst heitir jan2000mommies og eins og nafnið bendir til þá er þetta hópur fyrir konur sem áttu börn í janúar 2000. Hópurinn er ennþá virkur, margir meðlimir hafa dottið út í gegnum árin eins og gengur og mörg börn bæst í hópinn. Ég var aðeins að fletta í gegnum gömul bréf á síðu listans og fann hérna eitt sem ég skrifaði 7. júní árið 2000, birti það hér til gamans. Þetta er eins og svona smá ferðalag aftur í tímann fyrir mig:)

Hi there everyone:)

Wow.....I haven't written for a LONG time.......:) I went to visit my parents for a week while Sæbi was in Sweden and Denmark.
He went to a basketball tournament in Goteborg and then spent a couple of days in Copenhagen....maybe he run into your Matt Caroline.....LOL:) We both got back on tuesday. He had a very nice time and so did I. It was wonderful catching up with my family. Sæbi's got time off from work now until tuesday so we are going to enjoy this time together and try to do something fun.
This is about the only summer vacation that he is going to get. I just wish the weather was a little better....it's been rather cold and rainy since I got back. I've been keeping up with most of the mail but still have a few digests to read.

I read about your injury Joy, I hope you feel better soon and I am very glad that Saralyn is ok.

Katla is doing very well. She has a cold though......managed to catch it up north at my parent's place....no wonder...it was SNOWING when we got there:) It's getting better. She is eating a lot now.....she gets about a half a jar of fruits in the morning and then she gets oatmeal cereal at night...sometimes mixed with jarred vegetables. I'm still breastfeeding and that is going well also.

Well, I gotta run...she is awake.

Take care,

Rakel
---------------------------------------------------------------------------------------
"The only way to have a friend is to be one."
- Ralph Waldo Emerson (1803-82)

Rakel Sveinsdóttir
galdur@mmedia.is
http://www.mmedia.is/~galdur
---------------------------------------------------------------------------------------

Kela at 19.10.05

17.10.05

Það eru tveir veikindapésar á heimilinu núna. Katla vaknaði í nótt og kom uppí til okkar, svosem ekkert óvenjulegt við það. Hún kúrði smástund hjá okkur og ég fór svo með hana aftur í sitt rúm. Eftir smástund kom hún aftur og kvartaði yfir að henni væri illt í maganum. Ég hugsaði með mér að þetta væri nú líklega bara trix til að komast aftur uppí. Ég potaði í Sæba og bað hann um að fara með hana aftur yfir og gefa henni vatnssopa. Ekki leið á löngu þar til hún var komin aftur. Ég fór með hana aftur yfir og lagðist hjá henni, ennþá kvartaði hún um magaverk sem ég tók mátulega mikið mark á. Svo heyrðist "mamma ég þarf að gubba" og úbs, gusan yfir rúmið, kennir manni að taka mark á börnunum. Henni leið greinilega betur eftir þetta og eftir að búið var að þrífa og stússast þá sofnaði hún og svaf til morguns.
Það hittist svo skemmtilega á að þetta er einmitt dagurinn sem við áttum að mæta með bílinn á verkstæði kl 8 í morgun og Katla átti tíma hjá tannlækni kl 13. Og Sæbi orðinn veikur líka. En það þýðir ekkert annað en að reyna bara að redda málunum. Hringdum í tengdapabba, verkstæðið sem bíllinn var að fara á er nefnilega rétt hjá vinnunni hans. Þannig að hann reddaði okkur með það. Ég fór með bílinn og hann hitti mig þar og skutlaði mér svo heim. Svo var fenginn annar tími hjá tannsa, þannig að auðvitað bjargaðist þetta allt saman eins og alltaf. En við erum semsagt bara öll heima í dag. Vona bara að við Hekla Sif sleppum við þessa pest.

Kela at 17.10.05

"Life itself is the most wonderful fairy tale"
H.C. Andersen

*uppáhalds kvikmyndir

*bækurnar á náttborðinu:
-Inés of my soul eftir Isabel Allende
-Little moments of piece: Daily reflections for mothers eftir Andrea Alban Gosline


*tónlist

*blogg sem ég les
Nanna
Snyrtipinninn
Jana
Inga Sigga
Inga Rut
Birgitta frænka
Lísa cookiemonster
Stína
Anna Bogga
Sóley
Dísublogg
Valur-karfa
Kim
Pabbi
Árgangur'78 á Sigló
Erik
Adam Duritz

*tenglar
Stóra prinsessan
Litla prinsessan
Myndaalbúmið
Barnaland
Lífið á Sigló
Síldarminjasafnið
Kvikmyndir.is
Uppskriftir
Fleiri uppskriftir
Counting Crows
Survivor fever
Valur
Vídeóval
Galdrasýning á Ströndum
Kveiktu á kerti
Maður lifandi
Matargatið
J.K. Rowling
Café Sigrún
Póstkortaskipti
43 things
43 places
Póstkortabloggið
Flickr

*ýmislegt
gestabók
póstur
blogskins
blogger

*eldri skrif
20 október 2002 08 júní 2003 10 ágúst 2003 17 ágúst 2003 24 ágúst 2003 31 ágúst 2003 07 september 2003 14 september 2003 21 september 2003 05 október 2003 12 október 2003 19 október 2003 02 nóvember 2003 09 nóvember 2003 23 nóvember 2003 30 nóvember 2003 07 desember 2003 14 desember 2003 21 desember 2003 28 desember 2003 04 janúar 2004 11 janúar 2004 18 janúar 2004 25 janúar 2004 01 febrúar 2004 08 febrúar 2004 15 febrúar 2004 22 febrúar 2004 29 febrúar 2004 14 mars 2004 21 mars 2004 28 mars 2004 04 apríl 2004 11 apríl 2004 18 apríl 2004 25 apríl 2004 02 maí 2004 09 maí 2004 16 maí 2004 30 maí 2004 06 júní 2004 27 júní 2004 11 júlí 2004 18 júlí 2004 01 ágúst 2004 15 ágúst 2004 22 ágúst 2004 05 september 2004 12 september 2004 19 september 2004 26 september 2004 03 október 2004 10 október 2004 17 október 2004 24 október 2004 31 október 2004 07 nóvember 2004 14 nóvember 2004 21 nóvember 2004 05 desember 2004 12 desember 2004 02 janúar 2005 09 janúar 2005 23 janúar 2005 30 janúar 2005 06 febrúar 2005 27 febrúar 2005 06 mars 2005 03 apríl 2005 24 apríl 2005 15 maí 2005 22 maí 2005 05 júní 2005 26 júní 2005 24 júlí 2005 07 ágúst 2005 04 september 2005 11 september 2005 18 september 2005 02 október 2005 09 október 2005 16 október 2005 23 október 2005 30 október 2005 06 nóvember 2005 13 nóvember 2005 20 nóvember 2005 27 nóvember 2005 04 desember 2005 11 desember 2005 18 desember 2005 25 desember 2005 01 janúar 2006 15 janúar 2006 22 janúar 2006 29 janúar 2006 05 febrúar 2006 12 febrúar 2006 19 febrúar 2006 26 febrúar 2006 12 mars 2006 19 mars 2006 26 mars 2006 02 apríl 2006 09 apríl 2006 16 apríl 2006 23 apríl 2006 14 maí 2006 21 maí 2006 28 maí 2006 04 júní 2006 11 júní 2006 18 júní 2006 09 júlí 2006 16 júlí 2006 23 júlí 2006 06 ágúst 2006 13 ágúst 2006 20 ágúst 2006 27 ágúst 2006 03 september 2006 10 september 2006 17 september 2006 24 september 2006 01 október 2006 08 október 2006 22 október 2006 29 október 2006 05 nóvember 2006 12 nóvember 2006 26 nóvember 2006 03 desember 2006 10 desember 2006 17 desember 2006 24 desember 2006 31 desember 2006 21 janúar 2007 28 janúar 2007 04 febrúar 2007 11 febrúar 2007 18 febrúar 2007

FREE fantasy art e-cards at
wickedmoon.com!
Sendu vefkort!



*svona er veðrið hjá mér The WeatherPixie
Click for Reykjavik, Iceland Forecast Click for Reykjavik, Iceland Forecast
Site Meter