kelublogg - life itself is the most wonderful fairy tale

17.1.06

Mig langar að segja frá jákvæðri reynslu sem ég varð fyrir í dag. Maður heyrir svo oft talað um að fólki sé sama um náungann og sé ekkert að hafa fyrir því að aðstoða ókunnugt fólk, þannig að mig langar til að segja frá dæmi sem sýnir að það er til fólk lætur sér ekki standa á sama. En ég var semsagt stödd í Bónus í Hólagarði í dag, einu sinni sem oftar og var búin að versla, var að borga og Hekla Sif orðin eitthvað þreytt og pirruð. Svo þegar ég er rétt að byrja að týna í pokann þá er daman endanlega búin að fá nóg og orgar bara út í eitt! Ég beygi mig niður að henni og er að reyna að róa hana og finn dót í töskunni minni og læt hana fá. Þá kemur kona og býðst til að tala við hana á meðan ég klári að ganga frá vörunum. Ég þigg það með þökkum og býst til að fara að halda áfram að setja í pokann en þá var einhver búinn að því fyrir mig. Veit ekki hvort að það var stelpan á kassanum eða einhver annar viðskiptavinur en allavega, mér fannst þetta alveg frábært. Þó að þetta sé kannski ekki stórt atriði þá skipti þetta máli fyrir mig og ég fór út úr búðinni með bros á vör. Ætla að reyna að hafa þetta í huga, það þurfa ekki alltaf að vera stórir hlutir sem maður gerir fyrir aðra en skiptir samt máli.

Ég kíkti svo aðeins í brúðarkjólaleigu Katrínar, var búin að skoða heimasíðuna hjá þeim og sá einn kjól þar sem mér leist vel á og ekki verra að hann var á útsölu. Kjóllinn reyndist vera mjög flottur, en var miklu dýrari heldur en ég hafði átt von á en...fyrst að ég var nú komin á staðinn og Hekla Sif sofnuð þá fór ég að skoða fleiri kjóla og endaði á því að máta tvo...bara gaman:) Ég er nú ekki mikil kjólamanneskja en mér fannst þetta algjört æði..leið barasta eins og prinsessu:) Annar kjóllinn var virkilega flottur en hann var aðeins of þröngur á mig, hinn smellpassaði en ég var ekki fyllilega ánægð með hann. Líka ekki eins og ég sé í einhverju tímahraki með að finna kjól. Ég er líka búin að komast að því að leigurnar eru greinilega með einhverja kjóla í þeim stíl sem ég er að leita að..þó að ég sé bara búin að kíkja á eina þá reikna ég með að finna eitthvað á hinum líka. Og svo held ég að sjálfsögðu áfram að skoða á netinu, er búin að finna gommu af kjólum þar. Gaman að þessu:)

Kela at 17.1.06

16.1.06

Vetrarborgin! Ég tók þessa mynd af svölunum hjá mér núna áðan, það er sko greinilega kominn vetur í Reykjavík, ja allavega í nokkra daga, spurning hvað þessi snjór endist lengi:) Ég var líka að klára nýjustu bókina hans Arnaldar sem heitir einmitt þessu nafni. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum með hana, frekar en hinar bækurnar hans. Vel skrifuð og hélt mér algjörlega við efnið. Mér finnst líka svo skemmtilegt hvað maður er alltaf að kynnast þeim Erlendi, Sigurði Óla og Elínborgu betur og betur. Ég var svo að átta mig á því að það styttist í það að ég verði hálfnuð með fæðingarorlofið mitt, en litla snúllan mín varð 5 mánaða í gær! Ótrúlegt hvað tíminn flýgur, kemur mér alltaf jafn mikið á óvart:) Svo ekki sé minnst á það að Katla Dögg verður 6 ára eftir 10 daga. Ég var líka að hugsa um það hvað ég er búin að vera hrikalega léleg við það að fara út í göngutúra í þennan tíma sem ég hef verið heima. Man að ég fór út að labba með vagninn á nánast hverjum degi þegar Katla var lítil. Þarf að fara að reyna að vera duglegri við þetta, þarf svo innilega á hreyfingunni að halda! Af brúðkaupsundirbúningi er það að frétta að hann fer eingöngu fram á netinu ennþá..hehe...við erum alltof róleg í þessu held ég..þurfum allavega að fara að drífa í því að bóka prest, kirkju og finna stað fyrir veisluna. Þegar þetta er búið þá er fyrst hægt að fara að skipuleggja almennilega held ég. En ég bara ligg á netinu þessa dagana og brúðkaups-favorites listinn hjá mér er orðinn mjöööög langur!!! Það vantar ekki að þetta er mjög skemmtilegt en líka mjög tímafrekt, enginn vandi að týna sér á einhverjum kjólasíðum, spjallsíðum, kökusíðum og fleira og fleira...en þetta kemur vonandi allt hjá okkur:)

Kela at 16.1.06

"Life itself is the most wonderful fairy tale"
H.C. Andersen

*uppáhalds kvikmyndir

*bækurnar á náttborðinu:
-Inés of my soul eftir Isabel Allende
-Little moments of piece: Daily reflections for mothers eftir Andrea Alban Gosline


*tónlist

*blogg sem ég les
Nanna
Snyrtipinninn
Jana
Inga Sigga
Inga Rut
Birgitta frænka
Lísa cookiemonster
Stína
Anna Bogga
Sóley
Dísublogg
Valur-karfa
Kim
Pabbi
Árgangur'78 á Sigló
Erik
Adam Duritz

*tenglar
Stóra prinsessan
Litla prinsessan
Myndaalbúmið
Barnaland
Lífið á Sigló
Síldarminjasafnið
Kvikmyndir.is
Uppskriftir
Fleiri uppskriftir
Counting Crows
Survivor fever
Valur
Vídeóval
Galdrasýning á Ströndum
Kveiktu á kerti
Maður lifandi
Matargatið
J.K. Rowling
Café Sigrún
Póstkortaskipti
43 things
43 places
Póstkortabloggið
Flickr

*ýmislegt
gestabók
póstur
blogskins
blogger

*eldri skrif
20 október 2002 08 júní 2003 10 ágúst 2003 17 ágúst 2003 24 ágúst 2003 31 ágúst 2003 07 september 2003 14 september 2003 21 september 2003 05 október 2003 12 október 2003 19 október 2003 02 nóvember 2003 09 nóvember 2003 23 nóvember 2003 30 nóvember 2003 07 desember 2003 14 desember 2003 21 desember 2003 28 desember 2003 04 janúar 2004 11 janúar 2004 18 janúar 2004 25 janúar 2004 01 febrúar 2004 08 febrúar 2004 15 febrúar 2004 22 febrúar 2004 29 febrúar 2004 14 mars 2004 21 mars 2004 28 mars 2004 04 apríl 2004 11 apríl 2004 18 apríl 2004 25 apríl 2004 02 maí 2004 09 maí 2004 16 maí 2004 30 maí 2004 06 júní 2004 27 júní 2004 11 júlí 2004 18 júlí 2004 01 ágúst 2004 15 ágúst 2004 22 ágúst 2004 05 september 2004 12 september 2004 19 september 2004 26 september 2004 03 október 2004 10 október 2004 17 október 2004 24 október 2004 31 október 2004 07 nóvember 2004 14 nóvember 2004 21 nóvember 2004 05 desember 2004 12 desember 2004 02 janúar 2005 09 janúar 2005 23 janúar 2005 30 janúar 2005 06 febrúar 2005 27 febrúar 2005 06 mars 2005 03 apríl 2005 24 apríl 2005 15 maí 2005 22 maí 2005 05 júní 2005 26 júní 2005 24 júlí 2005 07 ágúst 2005 04 september 2005 11 september 2005 18 september 2005 02 október 2005 09 október 2005 16 október 2005 23 október 2005 30 október 2005 06 nóvember 2005 13 nóvember 2005 20 nóvember 2005 27 nóvember 2005 04 desember 2005 11 desember 2005 18 desember 2005 25 desember 2005 01 janúar 2006 15 janúar 2006 22 janúar 2006 29 janúar 2006 05 febrúar 2006 12 febrúar 2006 19 febrúar 2006 26 febrúar 2006 12 mars 2006 19 mars 2006 26 mars 2006 02 apríl 2006 09 apríl 2006 16 apríl 2006 23 apríl 2006 14 maí 2006 21 maí 2006 28 maí 2006 04 júní 2006 11 júní 2006 18 júní 2006 09 júlí 2006 16 júlí 2006 23 júlí 2006 06 ágúst 2006 13 ágúst 2006 20 ágúst 2006 27 ágúst 2006 03 september 2006 10 september 2006 17 september 2006 24 september 2006 01 október 2006 08 október 2006 22 október 2006 29 október 2006 05 nóvember 2006 12 nóvember 2006 26 nóvember 2006 03 desember 2006 10 desember 2006 17 desember 2006 24 desember 2006 31 desember 2006 21 janúar 2007 28 janúar 2007 04 febrúar 2007 11 febrúar 2007 18 febrúar 2007

FREE fantasy art e-cards at
wickedmoon.com!
Sendu vefkort!



*svona er veðrið hjá mér The WeatherPixie
Click for Reykjavik, Iceland Forecast Click for Reykjavik, Iceland Forecast
Site Meter