kelublogg - life itself is the most wonderful fairy tale

1.10.06

Enn ein helgin senn á enda....síðsta vika var vika símenntunar og af því tilefni var boðið upp á nokkur stutt námskeið og fyrirlestra í vinnunni. Ég fór t.d. á fyrirlesturinn "Að takast á við frestunaráráttu og öðlast framkvæmdagleði"..get alveg sagt það að ég sá sjálfa mig í ýmsu sem þar var fjallað um. Ég var t.d. ekki lengi að greina sjálfa mig sem flökkukind..en samkvæmt þessum fyrirlestri þá er hægt að skipta "fresturum" í nokkra hópa og flökkukindur eru týpurnar sem vaða úr einu í annað og enda svo á því að koma engu í verk...get tekið dæmi frá sjálfri mér..ef ég ákvæði nú að skúra stofugólfið hjá mér..ætti að vera frekar einfalt og ekki taka mjög langan tíma...ég næ í skúringaáhöld..sé þá að það eru leikföng á gólfinu..fer að týna þau upp...sé þá að ég verð nú að fara að taka til í leikföngunum hennar Heklu..byrja á því..þar leynist dót sem Katla á...fer með það inn til hennar...þar eru föt sem þarf að ganga frá...set þau inn í skáp...man þá að ég ætlaði að vera búin að taka til í fataskápnum hennar fyrir löngu, best að drífa í því...heyrðu þarnan eru buxurnar sem ég ætlaði að festa töluna á..geri það núna..fer og að leyta að nál og tvinna...rekst þá á ógreiddan reikning..best að borga hann á meðan ég man eftir því..opna heimabankann..kíki kannski aðeins á netið í leiðinni...og stofugólfið ennþá óskúrað! Kannski svolítið ýkt dæmi..en ég geri þetta samt alltof oft...týni mér í því að ætla að gera svo margt en enda svo á því að gera ekki neitt. Á föstudaginn var svo kynning á hláturjóga sem var mjög skemmtileg. Ég sá nú ekki alveg fyrir mér í byrjun hvernig þetta ætti að virka, að nota tilbúinn hlátur..en þegar til kom þá voru æfingarnar svo fyndnar að tilbúni hláturinn breyttist fljótt í eðlilegan hlátur...þetta var reyndar alveg stórskemmtilegt, væri meira en til í að prófa þetta aftur. Ein æfingin gekk t.d. út á það að koma ímyndaðri sláttuvél í gang sem gaf frá sér hin undarlegustu hljóð..hún hrökk svo í gang í þriðju tilraun og þá átti maður að byrja að slá..rölta semsagt um gólfið með sláttuvélina sína og hlæja á meðan...en svo úps misstirðu stjórn á sláttuvélinni og hún fór að elta þig...við vorum ca. 20 sem mættum í þetta..allir hlaupandi um gólfið elt af ímyndaðri sláttuvél og hlægjandi eins og vitleysingar....aha...frekar spaugilegt:) Helgin var svo bara mjög fín....veðrið alveg frábært og Katla var meira og minna úti að leika. Sæbi fór til eyja á laugardagsmorguninn...8. flokkurinn var að keppa þar. Gekk ágætlega hjá þeim og gaman fyrir hann að koma til eyja. Við skutluðum honum niður á Hlíðarenda og svo fór ég með stelpurnar í klippingu. Þetta var fyrsta klippingin hennar Heklu og hún gekk bara nokkuð vel:) Við stelpurnar skruppum svo í Smáralind seinni partinn á laugardaginn...kíktum þar á ostadaga og smökkuðum á liggur við hverri einustu ostategund sem var í boði. Hittum líka Óla, pabba hennar Ingu Rutar sem var þar að vinna, gaman að því. Fórum svo í skóleiðangur, en Kötlu vantaði bæði kuldaskó og strigaskó...fórum í Hagkaup og fundum þar fína skó. Rakel viðutan tókst í leiðnni að týna veskinu sínu (ekkert nýtt), áttaði mig á því um leið og ég var kölluð upp til þess að koma fram að þjónustuborði, að ég var ekki með veskið:) Eyddi svo laugardagskvöldinu í rólegheitum og við Katla horfðum á afmælisdagskrána á rúv..sem var bara alveg ágæt nokkur skondin atriði þarna inn á milli. Við tókum svo daginn snemma í dag og drifum okkur út í göngutúr og sund. Vinkona Kötlu kom svo í heimsókn og þær voru úti að leika mestallan tímann sem hún var hjá okkur. Við röltum svo útí búð og komum við á leikskólanum sem er hér rétt hjá í bakaleiðinni. Heklu fannst nú ekki leiðinlegt að fá að rölta þar um og prófa rennibrautirnar og leika sér í sandinum. Hún labbaði svo alla leiðina heim, ekkert smá dugleg. Katla fór á hjólinu, hún er orðin mjög dugleg að hjóla og hjólið er mikið notað þessa dagana. En ég ætla að fara að spjalla við manninn minn sem var að koma heim:)

Kela at 1.10.06

"Life itself is the most wonderful fairy tale"
H.C. Andersen

*uppáhalds kvikmyndir

*bækurnar á náttborðinu:
-Inés of my soul eftir Isabel Allende
-Little moments of piece: Daily reflections for mothers eftir Andrea Alban Gosline


*tónlist

*blogg sem ég les
Nanna
Snyrtipinninn
Jana
Inga Sigga
Inga Rut
Birgitta frænka
Lísa cookiemonster
Stína
Anna Bogga
Sóley
Dísublogg
Valur-karfa
Kim
Pabbi
Árgangur'78 á Sigló
Erik
Adam Duritz

*tenglar
Stóra prinsessan
Litla prinsessan
Myndaalbúmið
Barnaland
Lífið á Sigló
Síldarminjasafnið
Kvikmyndir.is
Uppskriftir
Fleiri uppskriftir
Counting Crows
Survivor fever
Valur
Vídeóval
Galdrasýning á Ströndum
Kveiktu á kerti
Maður lifandi
Matargatið
J.K. Rowling
Café Sigrún
Póstkortaskipti
43 things
43 places
Póstkortabloggið
Flickr

*ýmislegt
gestabók
póstur
blogskins
blogger

*eldri skrif
20 október 2002 08 júní 2003 10 ágúst 2003 17 ágúst 2003 24 ágúst 2003 31 ágúst 2003 07 september 2003 14 september 2003 21 september 2003 05 október 2003 12 október 2003 19 október 2003 02 nóvember 2003 09 nóvember 2003 23 nóvember 2003 30 nóvember 2003 07 desember 2003 14 desember 2003 21 desember 2003 28 desember 2003 04 janúar 2004 11 janúar 2004 18 janúar 2004 25 janúar 2004 01 febrúar 2004 08 febrúar 2004 15 febrúar 2004 22 febrúar 2004 29 febrúar 2004 14 mars 2004 21 mars 2004 28 mars 2004 04 apríl 2004 11 apríl 2004 18 apríl 2004 25 apríl 2004 02 maí 2004 09 maí 2004 16 maí 2004 30 maí 2004 06 júní 2004 27 júní 2004 11 júlí 2004 18 júlí 2004 01 ágúst 2004 15 ágúst 2004 22 ágúst 2004 05 september 2004 12 september 2004 19 september 2004 26 september 2004 03 október 2004 10 október 2004 17 október 2004 24 október 2004 31 október 2004 07 nóvember 2004 14 nóvember 2004 21 nóvember 2004 05 desember 2004 12 desember 2004 02 janúar 2005 09 janúar 2005 23 janúar 2005 30 janúar 2005 06 febrúar 2005 27 febrúar 2005 06 mars 2005 03 apríl 2005 24 apríl 2005 15 maí 2005 22 maí 2005 05 júní 2005 26 júní 2005 24 júlí 2005 07 ágúst 2005 04 september 2005 11 september 2005 18 september 2005 02 október 2005 09 október 2005 16 október 2005 23 október 2005 30 október 2005 06 nóvember 2005 13 nóvember 2005 20 nóvember 2005 27 nóvember 2005 04 desember 2005 11 desember 2005 18 desember 2005 25 desember 2005 01 janúar 2006 15 janúar 2006 22 janúar 2006 29 janúar 2006 05 febrúar 2006 12 febrúar 2006 19 febrúar 2006 26 febrúar 2006 12 mars 2006 19 mars 2006 26 mars 2006 02 apríl 2006 09 apríl 2006 16 apríl 2006 23 apríl 2006 14 maí 2006 21 maí 2006 28 maí 2006 04 júní 2006 11 júní 2006 18 júní 2006 09 júlí 2006 16 júlí 2006 23 júlí 2006 06 ágúst 2006 13 ágúst 2006 20 ágúst 2006 27 ágúst 2006 03 september 2006 10 september 2006 17 september 2006 24 september 2006 01 október 2006 08 október 2006 22 október 2006 29 október 2006 05 nóvember 2006 12 nóvember 2006 26 nóvember 2006 03 desember 2006 10 desember 2006 17 desember 2006 24 desember 2006 31 desember 2006 21 janúar 2007 28 janúar 2007 04 febrúar 2007 11 febrúar 2007 18 febrúar 2007

FREE fantasy art e-cards at
wickedmoon.com!
Sendu vefkort!



*svona er veðrið hjá mér The WeatherPixie
Click for Reykjavik, Iceland Forecast Click for Reykjavik, Iceland Forecast
Site Meter